GOLF í febrúar

Góðan daginn kæru vinir, kunningjar, ættingjar og aðrir.

Ég tók þátt í golfmóti í gær 25.febrúar 2012 í Sandgerði.. aðstæður voru vægast sagt frábærar miðað við árstíma og á golfklúbbur Sandgerðis heiður skilið fyrir þessi vetrarmót :)

Þegar ég keyrði úr bænum þá var snjór yfir öllu, og þegar ég var kominn á Reykjanesbrautina var ennþá snjór.. mér leist ekkert sérstaklega vel á blikuna.

Svona leit Reykjanesbrautin út

Svo hélt ferðin áfram og við innganginn í Reykjanesbæ var snjórinn horfinn.

OK nú var mér farið að lítast aðeins betur á veðráttuna, en þegar ég kom á áfangastað þá trúði ég ekki mínum eigin augum.. það var búið að slá flatirnar (green-in) og þau voru græn og fín, meira svona eins og í september en ekki febrúar!

Golfklúbburinn í Sandgerði ætlar að vera með mót á laugardögum í allann vetur meðan veðrið er svona gott. Alveg klárt mál að maður á eftir að mæta þarna aftur til leiks á næstu vikum :)

 

 

2 Comments

Gleðilegt ár!

Gleðilegt ár kæru vinir nær og fjær! Vonandi verður 2012 jafn fjandi fínt og 2011 :)

1 Comment

Icesave – Nei að Já

Texti fenginn að láni frá vefnum http://advice.is
Hvað gerist ef við segjum nei við samningnum?

Í fyrsta lagi þá fá Bretar og Hollendingar lágmarksinnistæðutryggingu greidda úr þrotabúi Landsbankans og m.v. verðmat þrotabúsins líklega einnig talsvert upp í það sem þeir greiddu umfram lágmarkið.

Í öðru lagi þarf ríkisstjórnin að senda svarbréf til ESA með rökstuðningi gegn áliti þeirra um meint brot á EES samningnum. Flestir málsmetandi aðilar telja að ef ESA leitar til EFTA dómstólsins muni hann hafna kröfu um ríkisábyrgð. Þótt EFTA álykti að um samningsbrot hafi verið að ræða leiðir það ekki til bótaskyldu. Íslenskir dómstólar eru endanlegt dómsvald í málinu. Þeir dæma eftir íslenskum lögum og bætur, ef einhverjar eru skilgreindar í íslenskum krónum.  Að fá dóm í íslenskum krónum kemur síðan í veg fyrir greiðslufall íslenska ríkisins sem minnkar áhættuna verulega í samanburði við fyrirliggjandi samning.

Í þriðja lagi er talið mjög ólíklegt að Bretar og Hollendingar kjósi að fara í mál, jafnvel þótt EFTA álykti gegn Íslandi. Kærumál fyrir dómstólum myndi taka mörg ár og á þeim tíma myndi oft gefast tækifæri til að semja, ef vilji væri til þess.

Lánshæfi ríkisins mun batna því ólögvarin krafa, sem auk þess stendur á veikum grunni, getur ekki íþyngt greiðsluhæfi þjóðarinnar með sama þunga og samningsbundin ábyrgð.

Auðveldara verður að aflétta gjaldeyrishöftum því ekki verður af því gjaldeyrisútstreymi sem samningurinn kveður á um.

Hvað gerist ef við segjum já við samningnum?

Þá greiðum við strax 26 milljarða í áfallna vexti og göngumst í ábyrgð fyrir allt að 670 milljarða kröfu sem viðsemjendur áttu á einkabanka.

Til að greiða kröfuna tökum við myntkörfulán, án þess að vita hver höfuðstóllinn er.

Við samþykkjum að lögsaga í málinu verði flutt frá íslenskum dómsstólum.

Málaferlum lýkur ekki. Samningurinn kveður beinlínis á um að hluti hans fari fyrir dómstóla. Einnig gætu aðrir kröfuhafar viljað leita réttar síns og fengið samningnum hnekkt. Því hefur verið haldið fram að samningurinn standist hvorki íslensk né evrópsk lög en ef það reynist rétt þá gjaldfellur hann allur samstundis skv. skilmálum hans.

Lánshæfi íslenska ríkisins mun versna í samræmi við óvissa skuldastöðu.

Erfiðara verður að aflétta gjaldeyrishöftunum því gengi krónunnar verður að haldast stöðugt á samningstímanum.

Ef illa fer, þá gæti tekið áratugi að greiða niður afborganir með vöxtum. Til að afla fjár, hefur ríkið engar aðra leiðir en að hækka skatta og draga úr þjónustu.

 

Svo er hér smá skoðanakönnun varðandi ykkar skoðun:

 

Ætlar þú að samþykkja Icesave samninginn í kosningnum þann 9.apríl 2011

View Results

Loading ... Loading ...

3 Comments

Hvað er að frétta af ríkisstjórninni ?

Ekki neitt, en ef þú starir á þennan kross á myndinni nógu lengi þá hverfa doppurnar í kringum hann. Magnað alveg !!!!!!!!!!!!!!! ;-)

No Comments

Smá blogg um Manchester United.

Velkominn til leiks Michael Owen, þú átt eftir að brillera í vetur ;)

Liverpool menn verða ánægðir með þessa færslu ;-)

6 Comments

Simply the best !

Eins og glöggir lesendur kristjans.com hafa tekið eftir fórum við Óli Símon á einn stærsta leik United á þessu ári, þar sem mínir menn slógu út Barcelona í undan úrslitum meistaradeildarinnar :)

Þetta var náttúrulega algjörlega fullkomin ferð, og við duttum í lukkupottinn hvað varðar sætin okkar á vellinum, en við fengum algjörlega geggjuð sæti fremst við völlinn :)

Fáum mynd sem lýsir þessu betur:

:)

gott útsýni :)

Stemningin þarna var ólýsanleg, þvílíkt og annað eins.

Það er ekki slæmt að vera United maður í dag, en eins og alþjóð veit þá tryggði United sér englandsmeistara titilinn í gær. Þannig að þetta er klappað og klárt, United er besta lið englands. Næst á dagskrá er að vinna Chelsea í úrslitum meistaradeildarinnar.. en það mun gerast 21.maí takk fyrir það.

Champions !
Besta lið Englands fær bikarinn afhentan. Manchester United

Bestur
Besti og mesti knattspyrnustjóri Englands frá upphafi. Sir Alex Ferguson

Bestur í heimi
Langbesti knattspyrnumaður heims, ekki nokkur vafi. Cristiano Ronaldo

 

14 Comments

Stórkostlegt ferðalag framundan

Á næsta þriðjudag mun Manchester United mæta Barcelona í seinni leiknum í undanúrslitum meistaradeildar evrópu. Það má því með sanni segja að þetta sé stærsti og mikilvægasti leikurinn á Old Trafford í ár.

Það besta við þetta allt er að ég og snillingurinn Óli Símon ætlum að skella okkur á þennan stórkostlega leik! Spenningurinn er svakalegur og það verður gaman að upplifa það að fara á svona stórleik. Við keyptum pakkaferð sem er algjör snilld.. flogið beint til manchester á mánudaginn 28.apríl, svo er leikurinn 29. apríl og farið heim miðvikudaginn 30.apríl. Þetta gerist einfaldlega ekkert betra.

Þegar ég fór á Old trafford 2005 þá fórum við á stuðningsmanna pöbbinn Bishop Blaize fyrir leikinn og lærðum náttúrulega alla stuðningsmanna söngvanna. Þangað munum við að sjálfsögðu fara aftur á þriðjudaginn og taka svona 3-4 klukkutíma af klikkaðri stemningu þar fyrir leik.

Fáum myndband af Bishop Blaize:

-H6qDz6trG0

Bestur 

Snillingur!

Carrick er snillingur :)

:)

Eftirvæntingin er gríðarleg og mun ég koma með ferðasögu og jafnvel myndir í næstu viku :)

GLORY GLORY MAN UNITED !

6 Comments

Föstudags húmor

múhaha

10 Comments

Borgarblús

Dagur er liðinn og dæmalaus sorg,
depurð og leiði í hnípinni borg.
Ólafur Frjálslyndur (óháður þó)
öllu brátt ræður í fjúki og snjó.

Björn Ingi snarar sér Boss-jakkann í,
blessaður engillinn kominn í frí.
Svandís er forviða, heldur um haus,
hennar er stóllinn þó alls ekki laus.

Vilhjámur Þ., sá er stóð upp úr stól
og stakk af til Kanarí rétt fyrir jól,
kemur til baka með börnin sín smá
og borgmester verður að ári hér frá.

4 Comments

Jólin nálgast

Jæja.. þá eru jólin að detta inn enn einu sinni. Allt klárt á okkar heimili, meira segja búið að pakka inn pökkunum! :)

Þannig að það er ekkert jólastress í gangi… enda er það bara hugarástand. Ekkert til sem heitir jólastress, er það nokkuð ?

Annars gleymdi ég að blogga hérna á síðasta sunnudag, en á þeim degi tóku mínir menn í United sig til og heimsóttu Liverpool á Anfield.. og UNNU 0-1, það þarf engum blöðum um það að fletta að United liðið er sterkara núna en undanfarin ár. Þessvegna verður alveg ótrúlega gaman í vor að vinna deildina og meistaradeildina! (p.s.: þá verður komið 50″ panasonic plasmi í stofuna hjá okkur).

:)

Ronaldo

Góða helgi kæru lesendur, og gleðileg jól ! :)

7 Comments

Switch to our mobile site