Archive for May, 2006

Það styttist í HM 2006

Núna styttist heldur betur í HM 2006. Aðeins 10 dagar í það! :) Snilldin ein.

HM 2006 skjalið sem ég var með á síðunni hérna um daginn. Nú er búið að betrumbæta það og allar tímasetningar komnar á Íslensku, njótið vel: HM2006

Svo hérna að lokum ætla ég að deila með ykkur HM 2006 reglum fyrir Konur :)

1. Frá 9. júní til 9. júlí 2006 skaltu fylgjast vel með fréttum varðandi HM svo þú vitir hvað er að gerast á lokakeppninni í Þýskalandi.  Þá getum við talað lítilega saman á meðan á lokakeppninni stendur þar sem ég mun ekki ræða um neitt annað en FÓTBOLTA.

2. Á meðan á lokakeppni HM stendur er sjónvarpið mitt – alltaf og án allra undantekninga.

3. Það er allt í lagi ef þú þarft að komast framhjá sjónlínu minni að sjónvarpinu svo lengi sem þú skríður eftir gólfinu og truflar mig ekki.  Ef þér skildi detta í hug að standa nakin fyrir framan sjónvarpið farðu þá strax aftur í fötin þar sem ég mun ekki hafa tíma til að fara með þig til læknis fáir þú kvef.

4. Á meðan á leik stendur verð ég heyrnalaus, mállaus og blindur  gagnvart þér – nema ef til þess kemur að ég þurfi nýjan bjór eða eitthvað að borða.

5. Það er góð hugmynd fyrir þig að hafa alltaf alla vega tvær kippur af bjór vel kældar inni í ísskáp og nóg af snakki.  Ef þú hagar þér vel fyrir framan vini mína máttu horfa á sjónvarpið frá klukkan 12 á miðnætti til 6 um morguninn ef það eru ekki neinar endursýningar á þeim tíma.

6. Ef þú sérð að ég er reiður eða pirraður þegar liðið mitt er að tapa viltu þá EKKI segja “þú jafnar þig – þetta er bara leikur” eða “ekki hafa áhyggur – þeir vinna kannski næst.”  Ef þú segir þetta verð ég bara reiðari eða pirraðari. Mundu ávallt að þú munt aldrei vita meira um fótbolta en ég og svona setningar verða bara til þess að við skiljum fyrr.

7. Þú mátt horfa á EINN leik með mér og þú mátt tala við mig í hálfleik, en bara þegar auglýsingarnar eru og bara ef staðan er góð.  Taktu líka eftir að ég sagði EINN leik, ekki reyna að nota lokakeppni HM sem einhverja hörmulega tilraun til að “eyða tíma saman”.

8. Endursýningar á mörkum eru mjög mikilvægar. Mér er alveg sama hvort ég hafi séð markið áður eða ekki, ég vil sjá það oft og mörgum sinnum í viðbót.

9. Segðu vinkonum þínum að eignast ekki börn á þessum tíma, ekki halda nein barnaafmæli eða aðrar fáránlegar veislur vegna þess að:
a) ég mun ekki mæta
b) ég mun ekki mæta og
c) ég mun ekki mæta

10. En athugaðu, ef vinur minn bíður mér í heimsókn til að horfa á leik er ég rokinn.

11. Markaþættirnir í lok dagsins eru alveg jafn mikilvægir og leikirnir sjálfir. Ekki detta í hug að láta út úr þér setningu eins og “en þú hefur séð þetta áður” eða “af hverju skiptir þú ekki um stöð?”  Lestu aftur reglu númer 2.

12. Og að lokum, sparaðu þér setningu eins og “Guðs sé lof af lokakeppni HM er bara á 4 ára fresti”. Ég heyri ekki þessa setningu enda tekur Meistaradeildin, Enski boltinn, Ítalski boltinn, Spænski boltinn  og fleira við.

Takk fyrir að virða reglurnar.

Karlmenn um heim allan!

:)

10 Comments

Kosningar 2006

Jæja yndislega fólk.
Djöfull sem tíminn líður óhugnarlega hratt alltaf, á morgun er akkurat eitt ár síðan ég flutti hingað á Skólavörðustíg 6B. Mér finnst eins og það sé miklu styttra síðan. En eins og ég hef sagt áður, þá líður tíminn hratt þegar er gaman og mikið að gera, og það er nákvæmlega svoleiðis sem staðan er hjá mér.

Ég rölti niður í Ráðhús áðan og kaus, að sjálfsögðu kaus ég “rétt”, og spennan verður gífurleg í kvöld. Þetta er ekki spurning um hvort Björn Ingi komist inn að mínu mati.. þetta er spurning um hvort Björn Ingi og Óskar Bergsson komist inn. Það er svo magnað með Framsóknarflokkinn, hann drullar alltaf upp á bak í öllum skoðanakönnunum en svo þegar búið er að telja öll atkvæði þá eru þeir alltaf með mun betri stöðu en flestir reikna með.

Kosningar 2006 :)

Eftir að ég kaus fór ég svo á Austurvöll og hitti Robba, en þar voru að spila fullt af hljómsveitum, eins og t.d. Hjálmar, KK, Flís, Bogomil Font og fleiri. Það sem ég tók eftir var að Siglfirðingurinn knái Helgi svavar Helgason spilaði á trommur í öllum hljómsveitunum! :) Enda ótvíræður trommukóngur Íslands.

Ástæðan fyrir þessari gleði á Austurvelli var að samtökin Íslandsvinir voru að mótmæla stóriðjustefnu, og spillingu á náttúru Íslands. Það var gaman að sjá suma mótmælendurna… einn þeirra var í hvítum samfesting með gasgrímu og aftan á bakinu stóð: Drekkjum Valgerði – Ekki Íslandi.

En kæra fólk, þó ég sé nú ekki Framsóknarmaður, þá verð ég staddur með Birni Inga og félögum í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld á kosningavöku Framsóknarmanna.
Ástæðan er einföld: Fanný :) En hún er Framsóknarkona fram í fingurgóma eins og flestir vita, og skipar 11. sæti listans í ár. Ef Björn Ingi nær kjöri verður þetta örugglega mjög skemmtilegt allt saman og á jákvæðu nótunum… en ef hann kemst ekki inn, þá fara menn líklega í þunglyndis og brjálæðis köst og þá er eins gott að forða sér bara…

Vona að þið skemmtið ykkur vel í kvöld!

já.. eitt enn, ég spái því að H-listinn á Siglufirði munni vinna kosningarnar þar á bæ :)

8 Comments

Esjan 2006

Eins og glöggir lesendur síðunnar hafa tekið eftir eru myndir frá Esjuferðinni okkar félaganna í mynda albúminu. Ég, Ingvar, Gaui, Gústi og Valbjörn héldum í Esjuferð þann 14.júní í fyrra, og það var hin magnaðasta ferð í alla staði :)

Sumir (Ingvar) fengu reyndar hjartaáfall nokkrum sinnum á leiðinni upp, en þetta hafðist allt með jákvæðu hugarfari og baráttu vilja um að komast á toppinn! ;)

Fjallgöngu garpur

Við félagarnir vorum svo helvíti bjartsýnir að við ætluðum að hafa þetta vikulega göngu yfir sumarið. En viti menn, við höfum ekki farið síðan.
Þannig að nú er bara að fara að taka fram gönguskóna, því það styttist óðum í Esjugöngu 2006. Ég mun hafa samband við göngugarpana Ingvar, Gaua og Gústa, en Valli sleppur í þetta sinn þar sem hann er út á ballarhafi. Ef það eru einhverjir snillingar sem vilja bætast í hópinn, þá er bara að hafa samband! En stefnan er að fara í byrjun júní (þegar snjórinn er farinn úr Esjunni).

:)

 

11 Comments

Púað á Silvíu Nótt

Össs… við erum dottin út úr Eurovision, eins og ég bjóst við. Bara púað á Silvíu greyið þegar hún kom fram á sviðið…. Djöfulsins ókurteisi!! :) .. en ætli hún hafi ekki alveg verið búin að vinna fyrir þessu púi, jú líklega.

Annars fannst mér atriðið hjá henni bara nokkuð flott, en hún var augljóslega mjööög stressuð og “andstutt”. Enda kannski ekki skrýtið m.v. hvernig móttökur hún fékk.

Mér fannst hún algjör snilld í tíu fréttunum í gærkvöldi, þegar hún kom öll út væld í viðtal til Sigmars og sagði að hún væri á leiðinni til Ameríku að meika það, því allir í evrópu væru svo vondir við sig og svo framvegis.
Einnig kom það fram í fréttunum að Silvía hefði farið upp á svið eftir keppnina og muldrað eitthvað, og svo farið inn í make-up herbergið sitt og RÚSTAÐ ÞVÍ. Múhahahahahahah!! Hún lét svo sannarlega mikið fyrir sér fara þessi elska, hún má eiga það :)

Snillingur

 

En núna er að koma helgi, og er ég með smá grillveislu heima á eftir, svo er ekkert planað eftir það. En á morgun… þá verður haldið á Hressó eftir eurovision og svo kíkkað á bræðurna Gotta og Eisa sem verða að spila þar frá 22:00 – 01:00, eflaust verður miiiikið stuð og troðfullt af mögnuðum Siglfirðingum, gerist ekki betra! :)

The Brothers

 

En best að enda þetta á áríðandi tilkynningu frá Sjálfstæðismönnum í Tuborg (áður Árborg)
 
Eins og flestir ef ekki allir íbúar Tuborgar vita þá hefur eitt af stóru baráttumálum Sjálfstæðisflokksins í Tuborg fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í ár verið áhersla á að Hellisheiðin verði full-upplýst á næsta kjörtímabili… Þetta baráttumál er ekki lengur á stefnuskrá flokksins þar sem komið hefur í ljós að ljósastaurar geta hreinlega bara verið fyrir!!

 

Góða helgi :)

 

4 Comments

Allt að gerast!

Það er allt að gerast þessa dagana, úrslitaleikur meistaradeildarinnar í kvöld þar sem Barcelona munu vonandi bursta Arsenal. Ég á allavega von á góðum leik, þar sem hrossið (a.k.a. Ronaldinho) mun eflaust fara á kostum. En ég spái því að Barcelona menn vinni þetta 2-1

ronaldinho.jpg

Svo annað kvöld mun Silvía Nótt stíga á stokk í Aþenu. Það verður gleði ef hún kemst áfram, en einhvern veginn efast ég nú samt um það. Held það séu ekkert allir að ná þessu þarna úti að hún sé leikkona :)

Ég hlakka samt til þegar þetta eurovision rugl er búið, ég er kominn með hálfgert ÓGEÐ af Silvíu Nótt, þessi brandari hjá henni er gengin aðeins of lang!!

 silvia-night.jpg

6 Comments

Nýtt blogg

Velkomin(n) á nýtt bloggsvæði mitt. Ég var að flytja síðuna mína yfir á nýjan vefþjón og ákvað að setja upp nýtt kerfi í leiðinni. Síðan mín er í framsóknar litunum í augnablikinu í stíl við Fanný sem skipar einmitt 11.sæti listans ;)

 

Þetta look er einfalt og þægilegt… en kerfið keyrir á mysql gagnagrunni og notast við php forritunarmál, Einnig er komið myndaalbúm sem margir hafa beðið eftir ;)

 

Þetta kerfi er mjöööög þægilegt í notkun, þannig að stefnan er að verða duglegri að BLOGGA!!! :)

Vonandi verðið þið lesendur góðir jafn dugleg að kommenta hérna á nýju síðunni og þið voruð á þeirri gömlu! :)  

 

virðingarfyllst,
Bjarni Kristjánsson.

http://kristjans.com

6 Comments