Archive for June, 2006

Sólin mætt á svæðið

Jæja, ég er ekki frá því að ég hafi fengið ofbirtu í augun í morgun þegar ég labbaði út. Þvílíkt frábært veður. Ætli sumarið sé að koma loksins ? :)
það kemur þá á fullkomnum tíma, því HM er búið eftir rúma viku. Og þá fyrst hefur maður tíma til að hanga úti á svölum í góðum fíling sleikjandi sólina með grilltöngina í annari og einn kaldann í hinni! :-)

En nú er leikja pása á HM þar til á föstudag, og í tilefni þess og veðursins verður grillveisla heima í kvöld og mæta Gestur frændi Fannýjar og Heiðrún konan hans á svæðið.

En kíkkum aðeins á stöðuna á HM:

:)

Svakalegir leikir eftir.. hér kemur mín spá:
Argentína – Þýskaland… ég vona að argentína vinni, en ég held að þýska stálið muni slá þá út.
Italía – Úkraína… Ítalar slá þá út með því að múta dómaranum!
England – Portúgal… Rooney er kominn í gang, og England fer áfram.
Brasilía – Frakkland.. Brassarnir vinna þá, Ronaldo með 2 mörk í viðbót!

Undanúrslitin verða þá þannig:
Þýskaland vinnur ítalíu.
Brassarnir vinna Bretana.

Úrslitaleikurinn verður æsispennandi.
Þýskaland vinnur Brassana 2-1 í framlengdum leik!

En þetta er nú bara mín spá, og hún þarf ekki að endurspegla mat þjóðarinnar…  reyndar hafa mínar spár drullað upp á bak undanfarið.. en það er auka atriði! ;)

En..
Endilega komið þið með ykkar spá.. og það eru vegleg verðlaun fyrir þann sem spáir rétt! :)

13 Comments

KÁ-ESSSSS

Jæja kæru vinir. Eins gott að HM er í gangi, því það dregur hugann frá veðrinu (lesist: rigningunni).

Ég er byrjaður í Bootcampinu og lifið af fyrsta tímann.. sem er gott :-) tók 12 vikur í staðinn fyrir 6 þannig að ég verð á fullu fram til 9.sept.

En djöfull sem íslenska knattspyrnan gleymist í öllu HM æðinu. Ég hef ekki farið á neinn leik í sumar. Og ekki séð neinn leik með KS/Leiftri. En KS/Leiftur er að spila við Reyni í Sandgerði næsta laugardag klukkan 13:00:00, ætlar einhver að fara ?

En nú kemur gáta dagsins:

Hvað er skrýtið við þessa mynd?

:)
Mynd fengin að láni frá http://sksiglo.is

16 Comments

Bless, ég er farinn í herinn

Sumir undrast kannski titilinn á þessari færslu, en hún er alveg dagsönn ;) málið er… á meðan HM stendur, þá drekkur maður óvenju mikinn bjór, borðar maður óvenju mikið snakk, beikonborgara og meira góðgæti. Ég meina.. það passar ekkert að horfa á frábæran fótbolta drekkandi vatn og borðandi gulrætur yfir því. Glætan. Það er partur af leiknum að fá sér kaldann með :)

Í ljósi þessara staðreynda ákvað ég að taka EXTRA mikið á því í ræktinni, og er búinn að skrá mig á 6 vikna bootcamp námskeið. En það er nokkurs konar herþjálfun þar sem er tekið á öllu sem þú átt, og rúmlega það. Þetta er miklu erfiðara og árangusríkara heldur en að vera í tækjum hjá einkaþjálfara og þess háttar.

Ég veit alveg hvað ég er að fara út í því í október 2005 tók ég svona 6 vikur og árangurinn lét ekki á sér standa.

En tékkið á http://www.bootcamp.is/ ég verð í tímum á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum frá klukkan 7:30 – 8:30 á morgnanna, þar eru Róbert og Sverrir félagar mínir líka þannig að þetta verður alveg magnað! Skora á alla sem vilja komast í form að tékka á þessu.

kveðja,
Bjarni.

12 Comments

Nýtt gsm númer og fleira

Það er ýmislegt sem fylgir því að skipta um vinnu, en eins og ég sagði frá í þar síðasta mánuði ákvað ég að breyta til og fara frá Samskipum yfir til KB Banka. Ég byrjaði hér um síðustu mánaðarmót og þetta leggst mjög vel í mig. Góðir vinnufélagar og góð aðstaða.. og síðast en ekki síst.. ENDALAUST af verkefnum :)

En ég er kominn með nýtt gsm númer það er: 856-6499 og nýtt vinnu netfang: bjarnik@kbbanki.is þannig að þið getið hent út hinu númerinu og sett þetta inn í staðinn :)

Annars er mál málanna þessa dagana að sjálfsögðu HM og aftur HM… djöfull dýrka ég þessa keppni.

:)

Eini neikvæði punkturinn í þessu lífi er veðrið!!! hvað er málið með þessa rigningu! Og samkvæmt áreiðanlegum heimildum þá SNJÓAÐI á Sigló í dag! 12.júní 2006… Algjört rugl! :)

Rigningar suddi

Sólin hlítur að fara að láta sjá sig… vonum það allavega!

Koma svo!!

4 Comments

Kóngurinn rokkaði.

Jæja gott fólk, Hvítasunnuhelgin var mjög góð.. svona í rólegri kantinum, en það var að sjálfsögðu farið í pottinn öll kvöldin á Fossvegi Spa :) Svo var farið á ball á laugardagskvöldið með þeim heimsfrægu stuðboltum Stúlla og Sævari. Þeir voru náttúrulega bara eins og alltaf… með sama gamla “góða” prógrammið, en stemningin var alveg mögnuð þrátt fyrir það! :)

En ég kíkti í heimsókn til Lebba Kex í gærkvöldi og horfðum við á tónleika Bubba Morthens í botni. Alveg magnað að hann sé fimmtugur karl andskotinn, en hann fór gjörsamlega á kostum og tók öll bestu lögin sín. Í lokin var hann reyndar svo búinn á því að ég beið bara eftir því að hann fengi hjartaáfall, en allt kom fyrir ekki, hann kláraði þetta með stæl. Aðeins tvennt neikvætt við þessa tónleika að mínu mati, það var þegar Snorri idol stjarna kom fram og tók eitt lag alveg ömurlega, og svo líka þegar Bubbi tók ræðuna um ríkisstjórnina og var að fagna brotthvarfi forsætisráðherra og fleira. Come on… Ég vissi að Bubbi mundi taka svona hatursræðu, en þetta var of mikið af því góða. Hann á bara að einbeita sér að því að syngja.. og tala minna :)
Annars var þetta hin magnaðsta skemmtun og ég mun án efa kaupa mér DVD diskinn með þessum tónleikum þegar þeir koma út.

Góður :)

 

6 Comments

Það er komið sumar

Heldur betur, skínandi sól í dag og allir í góðum fíling. Við Fanný og Oddný erum að fara að leggja af stað á Sigló núna eftir nokkrar mínútur. Þar verðum við um helgina í afslöppun, pottinum og á bíóinu ;)

Komum svo heim aftur á mánudag. Á þriðjudag byrja ég svo í nýju vinnunni (KB Banka). Þannig að það er allt að gerast. Já.. og síðast en ekki síst, þá er Fanný flutt formlega inn… þó svo að hún hafi náttúrulega búið hér síðan í október.. ;)

En mál málanna er á þriðjudag, þá heldur kóngurinn Bubbi Morthens upp á 50 ára afmælið sitt, og heldur þvílíka tónleika í Laugardagshöllinni. Djöfull sem mig langar að fara, en náttúrulega löngu orðið uppselt.

flottur

Ef einhver veit um miða til sölu.. vegna forfalla or something… Please let me know!! :)

Annars segi ég bara góða hvítasunnuhelgi!

2 Comments