Archive for July, 2006

Sushi..

Jæja kæra fólk, kominn föstudagur og allir í góðum gír.

Maggi bróðir Fannýar og Hulda konan hans eiga 5 ára brúðkaups afmæli í dag, til hamingju með það! :)

í því tilefni ætla þau að koma til okkar Fannýar í SUSHI veislu í kvöld, sem er þeirra uppáhaldsmatur.. þ.e.a.s. Fannýar, Magga og Huldu.

Ég er langt frá því að vera Sushi maður, þannig að ég verð bara að éta mig saddann af einhverju öðru.. og narta svo í eitt og eitt hrísgrjón í veislunni ;)

En hvað er málið með Sushi… hrár fiskur og hrísgrjón vafin saman.

*hrollur*

Ég held að það sé einhver tíska að borða sushi í dag, trúi ekki að fólki finnist þetta betra en t.d. rauðglóandi nautasteik beint af grillinu..
Svo þeir sem borða ekki Sushi (eins og ég) eru bara sagðir óþroskaðir matarlega séð, og það þurfi nokkrar TILRAUNIR til að líka við þetta. Hvað er málið með það… ef þú borðar eitthvað og finnst það ekki gott, þá þarftu að borða það nokkrum sinnum í viðbót til að líka það. Þetta fer hringinn… er vont í fyrstu og svo verður þetta vont – gott (það er mín kenning) ;)

En hvað með ykkur lesendur góðir… borðið þið Sushi?

Annars segi ég bara góða helgi! :)

21 Comments

Fimmvörðuhálsinn

Jæja kæru vinir.

Þetta var nú meiri helgin! 
við fórum á Fimmvörðuháls um helgina :) Hópurinn spannaði 20 manns, ég, Fanný, Ingvar, Gunna, Palli, Maggi, Jón, Vigdís, Óli, Nasdía og fleiri.. man ekki fleiri nöfn í augnablikinu :)

En svona var þetta.

Vaknað klukkan 05:00 á laugardags morgninum (nóttinni) og étið sig uppfullan af pasta. Síðan lögðum við af stað úr bænum rúmlega 06:00. Komin að Skógum rétt upp um 08:00 og lagt af stað í gönguna 08:15

Fanný á leið upp tröppurnar 

Þarna er Fanný á leið upp tröppurnar frægu í byrjun, en þær eru 372 talsins og liggja upp fyrir Skógarfoss.

Þessi leið spannar 22 km, og við fengum fullkomið veður allann tímann þrátt fyrir smá þoku á toppnum. Útsýnið var vægast sagt hrikalega flott og þessi leið er frábær í alla staði. Maður á pottþétt eftir að fara þetta aftur einhvern daginn.

Við tókum okkur nokkuð margar pásur á leiðinni, til þess að borða og taka myndir. En rúmum 9 klukkustundum síðar vorum við komin í Þórsmörk. Hópurinn var allt frá 9 – 10 klukkutímum þangað eftir því hvort menn voru klikkaðir eða ekki. Og þegar ég tala um klikkaða menn, þá er ég að tala um mig, Magga og Jón.. því þegar við vorum búnir að labba í 8 tíma þá tókum við upp á því að HLAUPA restina. (Virkar vel þessi þrúgusykur sem við vorum að jappla á þarna á leiðinni).

Rútan kom svo um klukkan 19:00 í þórsmörk og skutlaði okkur á Skóga. Síðan var lagt af stað í bæinn. Stoppuðum á Hvolfsvelli til að fá okkur smá orku (hamborgara). Og við vorum komin heim rétt fyrir miðnætti… verð að viðurkenna það að maður var orðinn vel þreyttur og uppgefinn þá :)

Ég var með púlsmælinn á mér alla gönguleiðina, og hann sagði mér að ég hafi brennt 7640Kcal á leiðinni! Það eru nokkrir hammarar :)

En ég henti inn nokkrum myndum frá ferðinn í myndaalbúmið. Tékk it out :)

6 Comments

Ísland.. best í heimi.

Sáuð þið Rockstar Supernova ???

Djöfull er Magni magnaður! Stendur sig ótrúlega vel þessi viðkunnalegi snillingur frá Neskaupstað. Ég spái honum í topp 3 í þessari keppni… Hann verður þar ásamt Lukas og Dilönu.

Snillingur

Öryggið er uppmálað hjá Magna. Hann fer létt með þetta, enda er hann utan af landi!!

Ég held að fólk sé almennt ekkert að gera sér grein fyrir því hvað Magni er kominn út í, þessi þáttur er sýndur á besta tíma í USA og fleiri fleiri milljónir sem horfa á hvern einasta þátt. Af 28.þúsund keppendum er Magni kominn svo langt að það eru einungis 12 keppendur eftir. Þetta er frábært.

Hljómsveitin Supernova er skipuð snillingum. Þeir Jason Newsted og Gilby Clarke virðast vera svona þokkalega heilir. En Tommy Lee…. shit hvað maðurinn er skemmdur. Það er ekki ein heil skúra í honum. Bullar bara út í eitt og hagar sér eins og hann sé fjölfatlaður þarna upp í stúkunni. En þetta á eftir að verða hörkuhljómsveit.. það er nokkuð ljóst.

:)

Brooke Burke er ein heitasta daman í bransanum. Magni djöfull er pottþétt með númerið hjá henni! Hún dregur að sér heilmikið áhorf ein og sér þessi ofurdama :)

:)

Það verður spennandi að sjá hvaða band verður í næstu seríu af Rockstar. Það væri ekki amalegt að fá t.d. Rockstar – Nirvana!!!

8 Comments

Fjallgöngur.is

Jæja kæru gestir

Sumarið er tíminn         
þegar hjartað verður grænt
og augu þín verða
himinblá, ójá
(var þetta ekki einhvern veginn svona hjá Bubba?).

En nú er sumarið loksins farið að kikka inn, og maður þarf ekki að vera í vatnsheldum kraftgalla lengur… Gott stöff.

Helgin var snilldin ein.. fórum í bústað á Flúðum á laugardag – sunnudags þar sem var grillað og tjillað í pottinum, helvíti gott. Maður fer allt of sjaldan í sumarbústað.

En eins og glöggir lesendur Fannýar hafa kannski séð, fórum við Esjugöngu á síðasta miðvikudag.

:)

En þetta var nokkurs konar upphitunar ganga.. því næstu helgi verður farið í Fjallgöngu Dauðans. Jebb jebb.. þessi snilldar hópur ásamt nokkrum í viðbót ætlum að labba Fimmvörðuhálsinn. Það er frá Skógum yfir í Þórsmörk… Þessi leið spannar eina 22km. Sem er c.a. jafn langt og frá Sigló að Ketilás.. nema bara þessi leið er yfir fjöll. Eins gott að maður er búinn að vera í hernum (bootcamp) í nokkrar vikur svo maður hafi þol í þetta ;)

Svo styttist í verslunarmannahelgina.
Hvert ætlar fólkið að streyma ? Við tökum stefnuna á Þjóðhátíð..sem er náttúrulega bara gaman. En ef flugmennirnir sem Fanný þekkir ætla eitthvað að klikka þá er stór spurning hvert verður farið.. Sigló, Akureyri, Neistaflug, köben ?? En þetta kemur allt í ljós í þessari viku.. :)

Alltaf stemning í eyjum! :)

7 Comments

Er líf eftir HM ?

Jæja.. nú er HM búið og nú má koma sól!!!!!!!

Við Valli fórum í Egilshöllina á sunnudaginn til að sjá úrslitaleikinn þar sem ítalir mættu frökkum.. þar var mjög góð stemning og 200fm sýningar tjald.. athugið ekki 200 tommur.. heldur 200 fermetra tjald! :) .. svakalegt.

Ítalir unnu leikinn eftir vítaspyrnukeppni… frábær leikur í alla staði. En eini svarti bletturinn var þegar Zidane skallaði Materazzi. Zidane.. þessi frábæri leikmaður, með þennan frábæra feril lauk ferli sínum svona. Hann var rekinn út af með skömm. Þvílíkt auli sem hann er!

Þeir sem ekki vita það.. þá eru foreldrar Zidane báðir frá Alsír og hann er múslimi. Hérna kemur ástæðan fyrir því að Zidan missti stjórn á sér.

 

Gegnum allan úrslitaleikinn fékk Marco Materazzi það verk að passa Zidane og í hvert skipti sem hann komst nálægt markinu blótaði og úthúðaði Materazzi Zidane hægri vinstri. Allan tímann hundsaði Zidane þetta og lét sem vind um eyru þjóta.

Svo hélt Materazzi áfram og tosaði í treyjuna hjá Zidane og hélt utanum hann til að hindra för hans og Zidane sagði þetta við Materazzi þegar hann benti á ermina hjá sér:

- “Ordinanza de tirare il costume!!” ( Stop pulling on my jersey !! )
(Hættu að tosa í treyjuna mína!)

Materazzi svaraði:

- “Taciti, enculo, hai solamente cio che merite…” (Shut up you asshole, you are only getting what you deserve …)
(Haltu kjafti fáviti, þú átt þetta allt skilið)

- “si e cio…” ( yeah … it’s like that … )
(Já, þannig er það)

Þá fór Zidane að labba í burtu frá Ítalska varnarmanninum, en Materazzi hélt bara áfram meðan Zidane labbaði frá honum:

- “meritate tutti ci?, voi gli enculato di musulmani, sporchi terroristici” ( You deserve all that and more, all you motherfucking muslims do, you fucking terrorists )
(Þú átt þetta allt skilið og meira, allt sem þið helvítis múslimar gerið, djöfulsins hryðjuverkamenn)

Þarna er Zidane orðinn þreyttur á þessum úthúðunum, snarstoppar, snýr við og neglir í brjóstkassann á Materazzi.

auli

 

15 Comments

Hvað er að ske ske

Það commentuðu 13 á síðustu færslu, en engin hafði rétt fyrir sér varðandi úrslitin á HM.. sem er ekkert skrýtið því ekki einu sinni mér spámanninum datt í hug að þessi tvö ógeðis lið færu í úrslitaleikinn. En ég vona að Ítalía vinni frakkana.. get bara ekki haldið með frökkunum með alla þessa arsenal apa í liðinu. Annars er Zidane alveg magnaður anskoti.. hann kemur í göngugrind inn á völlinn en brillerar samt. Hann hlítur að vera á einhverjum ólöglegum efnum sá gamli. En hann ætlar greinilega að enda ferilinn með stæl!

Sáu þið leikinn í gær?
Djöfull var púað á félaga minn og dífingar meistarann Ronaldo.. Í hvert skipti sem hann kom í 2 metra radíus við boltann voru áhorfendur byrjaðir að púa. Ég var farinn að vorkenna kallinum aðeins… því hann er jú að spila í sama liði og ég (held með) Manchester United!
En hann er algjör snillingur og ég vona svo sannarlega að hann verði áfram í United.. og fari ekkert í Real Madrid eins og talað var um í fjölmiðlum um daginn. Ég bara neita að trúa því að hann fari!!

Snillingur

 

En nú er fimmtudagur og sól úti.. Djöfull hefur veðrið mikil áhrif á mann.. Siggi stormur er sálfræðingur þjóðarinnar. Ef hann lýgur því að veðrið verði gott á morgun, þá fara allir í gott skap.. en ef hann lýgur því að það verði snjókoma þá sjá allir bara svart og byrja að blóta okkar yndislega ÍSlandi.
En hafið þið frétt af veðurklúbbnum á Dalvík ?? Jebb jebb.. það er til klúbbur á Dalvík sem er mjög virkur að hittast… og eina sem talað er um og spáð í er veðrið! Algjör snilld :)

En mál málanna er Laugardagurinn 8.júlí… ekki bara af því að KS/Leiftur mun mæta ÍR klukkan 16:00 í Breiðholti.. heldur líka því þá á fullt af fólki stór afmæli… til að mynda verður Sóley Biddýar 20 ára! Halli kærastinn Oddnýjar verður 25 ára!, og síðast en ekki síst, Ingvar bróðir verður 30 ára!!! Svakalegt að þessi unglingur sé að komast á fertugs aldurinn á laugardag ;)

En hver trúir því ? Fáum mynd.
múhahahah

Til hamingju með laugardaginn Sóley, Halli og Ingvar, og njótið “sumarsins” !! :)

11 Comments