Archive for August, 2006

Man Utd komið á fullt! ;)

Djöfull sem lífið er skemmtilegt um þessar mundir..
Ekki nóg með það að við Fanný erum að fara í sumarbústað í viku núna á föstudaginn, þar sem verður tjillað, grillað, hangið í pottinum og kveikt upp í arninum.. ;) Síðan er von á góðum gestum til okkar þannig að þetta verður bara gaman!

En uppáhalds sjónvarpsstöðin mín er komin á fullt. Skjásport eins og hún heitir núna (áður Enski boltinn).. En eins og flestir vita þá sýna þeir alla leikina í ensku deildinni í BEINNI útsendingu! Alveg frábært.
Mínir menn í United eru gjörsamlega óstöðvandi núna í byrjun tímabilsins með markatöluna 8-1 eftir 2 leiki!! þeir munu án efa rústa deildinni í vetur! Þeir voru að vinna Charlton á útivelli áðan 0-3 þrátt fyrir að Rooney, Scholes og fleiri hafi verið fjarri góðu gamni! Og það besta við þetta allt er að ógeðis liðið Chelsea var að tapa fyrir Middlesbrough áðan 2-1.. Magnaður anskoti. Það eru komnar allt of margar stjörnur í þetta ógeðslega Chelsea lið… vonandi eiga þeir eftir að drulla upp á bak í vetur!

BESTIR

 

Best að enda þessa færslu á smá töktum frá félaga mínum Christiano Ronaldo, þessi frábæri knattspyrnumaður er einn sá allra besti á heimsvísu og spilar stórt hlutverk í mínu liði.. hann er fæddur árið 1985!! Pælið í því.. hann verður bara betri og betri með árunum… :)

Setjið hátalarana í gang.. og smellið svo á play!

r1q80QXzgU0

 

6 Comments

Það er nokkuð til í þessu :)

;)

12 Comments

Góðkunningi Lögreglunnar ;)

Jæja.. landsleikurinn i kvöld, þar sem stór lið spánar mun mæta Grétari Steins og co! Við Fanný ætlum að skella okkur á völlinn og hefjast herlegheitin klukkan 20:00 í laugardalnum! Áfram Ísland og allt það, en ég spái þessum leik 1-4 Spánverjum í vil.

Eins og margir vita, þá verða Cesc Fabregas og Jose Antonio Reyes úr arsenal í spánverjaliðinu í kvöld.
Geiri frændi er búinn að redda sér “back stage” miða, svo hann geti farið með þeim í sturtu eftir leikinn.
Djöfull sem hann er harður Arsenal maður þessi drengur! þetta er ekki hægt!

Ég skellti mér á sigló um síðustu helgi, og það var alveg magnað eins og alltaf. Leyfi hérna einni STEIKTRI mynd að fylgja með.. en hún er tekin klukkan 05:00 á laugardags nóttu, þegar löggan var búin að skutla okkur í partýið, þá náttúrulega var ekki annað hægt en að fá að testa búninginn! ;)

Múhahahahah

12 Comments

Þjóðhátíð og fleira :)

Jæja kæru gestir.

Nú er frábær verslunarmannahelgi búin.
Eins og glöggir lesendur tóku eftir fórum við Fanný á Þjóðhátíð, og það var bara snilldin ein. Váhhh hvað eyjafólk er mikið snilldar fólk. Veðrið var fínt þrátt fyrir rigningu á köflum.. Og djöfull sem var mikil snilld að vera með íbúð á leigu þarna og þurfa ekki að dúsa og djúsa inní tjaldi. Bara það að geta sofið í þurru rúmi, geymt bjórinn í ísskápnum, og farið í sturtu án þess að þurfa að fara í sund setur Þjóðhátíðina á mun hærra plan.. mæli með þessu fyrirkomulagi :)

Geðveikt

Það sem stendur upp úr er Todmobile… þeir voru alveg klikkaðir! Í svörtum fötum.. þvílík stemning hjá þeim, og síðast en ekki síst BUBBI kallinn Morthens… SHIT HVAÐ HANN ER MAGNAÐUR ALLTAF. Þvílíkt stuð þegar hann steig upp á svið.. einn með kassagítarinn, og 11.þúsund manns að syngja með öllum hans snilldar lögum. Frábært í einu orði sagt :)

Meistari

Það var mögnuð stemning í brekkusöngnum.. en Árni Johnsen er samt orðinn hálf þreyttur finnst mér. Alveg spurning um að láta einhvern annann ferskan taka við honum! :) Jet Black Joe voru fínir, Stuðmenn voru góðir (fyrir utan Birgittu Haukdal), og á móti sól er bara djók þegar Magni er ekki með þeim. Enda voru þeir bara að spila frá klukkan 05.00 – ?? á næturna :)
En á heildina litið, var helgin bara fullkomin!

Fanný fór til Finnlands í morgun í gufubað og ráðstefnu og kemur tilbaka á sunnudaginn, og ég ætla að skella mér á Sigló um helgina. Hef ekkert farið á Sigló síðan um hvítasunnuhelgina… gengur nátturulega ekki! Þetta sumar er bara búið að líða svo skrambi fljótt. Ótrúlegur anskoti.

Sáu ekki allir Magna ??
Hann er svo pottþétt að fara í topp 3 þessi drengur! Djöfull er hann að standa sig vel :)
Endum þessa færslu á frammistöðu hans

Ol66sMQ-DQw

3 Comments

Versló nálgast!

Jæja, þá fer þjóðhátíð óðum að nálgast :)
Við Fanný verðum með íbúð á leigu þar yfir helgina, þannig að skiptir ekki öllu máli hvort það komi 2002-legt veður (öldur upp á landi) eða ekki. Þetta verður bara stemning

En sáuð þið Rockstar í gær ?
Magni tók lagið Clock með Coldplay.. hans stóð sig bara frábærlega eins og vanalega.. þótt svo að mér finnist þetta drullu leiðinlegt lag yfir höfuð.

Hann fékk frábæra dóma.. og Tommy Lee sýndi það aðeins að hann er ekki alveg gjörsamlega heiladauður. Þetta er í fyrsta sinn sem ég sé Tommy Lee tala bara rólega og eðlilega við einhvern þarna í þessari keppni.

En sá sem stóð sig best í gær að mínu mati var Ryan Star.. hann tók Losing my religion með REM. Það var sjúkelga flottur flutningur.

En hérna er frammistaða Magna frá því í gær:

M2d9B1ADIhU

1 Comment