Archive for September, 2006

Nokkuð til í þessu..

Ég fékk sendan mjög skemmtilegan tölvupóst.. ákvað að deila honum með ykkur:

 

Fólk sem að fæddist fyrir 1990 ætti að vera dáið!!! (eða vorum við bara heppin??)

Já, samkvæmt löggjöfum og skriffinnum nútímans ættu þau okkar sem voru börn á 5., 6., 7. og 8. áratuga síðustu aldar ekki að hafa lifað af.

HVERS VEGNA VAR ÞESSI NIÐURSTAÐA OKKAR SVONA?

-Jú, barnarúmin okkar voru máluð með blýmálningu.

-Það var engin barnalæsing á lyfjaglösum, hurðum eða skápum

og þegar við hjóluðum notaði ekkert okkar hjálm.

-Sem börn sátum við í bílum án öryggisbelta og/eða púða.

-Að fá far á vörubílspalli var sérlega gaman.

-Við borðuðum brauð með smjöri, drukkum gos með sykri, en fæst okkar lentu í offituvandamálum, því við vorum alltaf úti að
leika

-Við deildum gjarnan gosflösku með öðrum og allir drukku úr sömu flöskunni án þess að nokkur létist.

-Við vörðum löngum stundum í að byggja kassabíl úr dóti og drasli og þutum á honum niður brekkuna, bara til að uppgötva að við höfðum gleymt bremsunum. Eftir nokkrar veltur lærðum við að leysa vandamálið.

-Við fórum að heiman snemma á morgnanna til að leika okkur allan daginn og komum aftur heim í kvöldmat Enginn hafði möguleika á því að ná í okkur yfir daginn.

-Engir farsímar. Ha, engir farsímar? Óhugsandi! Sumir áttu litlar talstöðvar sem var flott að eiga!

-Við áttum ekki Playstation, Nintento 64, X-box, enga tölvuleiki, ekki fjölmargar rásir í sjónvarpinu, ekki video, ekki gervihnattasjónvarp, ekki heimabíó, farsíma,
heimilistölvu eða spjallrásir á Internetinu.

-Við eignuðumst vini! Við fórum bara út og fundum þá.

-Við duttum í skurði, skárum okkur, fótbrotnuðum, brutum tennur, en enginn var kærður fyrir þessi óhöpp. Þetta voru jú óhöpp. Það var ekki hægt að kenna neinum um? nema okkur sjálfum. Manstu eftir óhappi?

-Við slógumst, urðum blá og marin og lærðum að komast yfir það.

-Við lékum okkur í nýbyggingum, fundum upp leiki með naglaspýtum og drasli og átum Maðka og reyktum njóla. Þrátt fyrir aðvaranir voru það ekki mörg augu sem duttu út og ekki lifðu maðkarnir inni í okkur til eilífðar og margir gáfust upp á fyrsta njólanum!

-Við hjóluðum eða gengum hvert til annars, bönkuðum á dyrnar, gengum inn og létum eins og heima hjá okkur.

-Við lékum okkur úti eftir kvöldmat, fórum í fallin spýta, eina krónu, eltingaleik eða feluleik, svo ekki sé minnst á löggu og bófa. Svo þegar aldurinn sagði til sín fórum við í kossaleik og eignuðumst kærustu/kærasta.

-Það þurfti engar félagsmiðstöðvar eða neina til að stjórna okkur – Við stjórnuðum okkur sjálf.

-Sumir nemendur voru ekki eins glúrnir og aðrir, þeir lentu í tossabekk. Hræðilegt…. En þeir lifðu af.

-Engin vissi hvað Rídalín var og engin bruddi pillur sem barn.

-Við fórum í sunnudagsskóla eða sóttum KFUM og K, sungum og vorum í Skátunum og lærðum hnúta og kurteisi.

-Ef það sprakk á hjólinu lagfærðum við það í sameiningu og alveg sjálf.

-Morgunkornið okkar var m.a. TRIX morgunkorn, og við lifðum af litarefnið í því…

OG AFLEIÐINGIN ER ÞESSI!

Síðustu 50 ár hafa verið sprengja nýsköpunar og nýrra hugmynda. Við áttum frelsi, sigra ósigra og ábyrgð og við lærðum að takast á við það allt saman. Við sem ólumst upp áður en löggjafi og stjórnvöld settu lög og reglur um líf okkar sem þeir segja að sé “okkur sjálfum fyrir bestu”?.

Þessi kynslóð hefur alið af sér fólk sem er tilbúið að taka áhættu, góð að leysa vandamál og bestu fjárfestar nokkru sinni.

Við áttum bara gott líf er það ekki?

:)

17 Comments

Haustið er komið..

Í tilefni þessa föstudags ætla ég að setja hér inn myndband af gaurunum bak við Simpsons fjölskylduna.. þetta er tær snilld, tékkið á þessu og stillið hljóðið hátt!

UCxmuuc4JIk

3 Comments

Komnir heim :)

Jæja, þá erum við komnir heim eftir alveg hreint út sagt frábæra ferð í alla staði. Smá breyting varð á síðustu stundu, þegar Alli Filla hætti við að koma með, og Brynjar Harðar ákvað að skella sér með í staðinn :)

Amsterdam er málið, og klárlega ein af skemmtilegustu borgum í evrópu. Frábært mannlíf, frábær menning, frábær matur, og frábært veður! Ekkert hægt að hafa það betra :)

Fáum smá myndbrot:

Á sunnudaginn fórum við svo til Alkmaar til Grétars Steins, og sáum leikinn AZ – FC Twente. Leikurinn var góður og endaði hann 2-2

Fáum smá myndir af því líka :)


Glæsilegur leikvangur hjá AZ


Mættir á völlinn


Vel merktir! :)


Svo er hérna mynd af Gretsky í lokin! (mynd fengin að láni frá AZ síðunni).

8 Comments

Stórleikur í kvöld

Klukkan 18:30 hefst fyrsti alvöru leikur United í meistaradeildinni, þeir mæta Celtic á Old Trafford og verður leikurinn sýndur í beinni á SÝN.

Snillingur

Rooney og Scholes eru mættir aftur til leiks eftir 3ja leikja bann!

Þessi leikur verður örugglega alveg hrikalega góður, og mínir menn eru á flugi þessa dagana og því spái ég hér með að United vinni öruggan sigur í kvöld 3-1

7 Comments

Haustferð 2006 :)

Jæja kæru vinir.. þá styttist í haustferðina 2006.
Sumarið 2004 ákváðum við Elli, Guðni, Gaui Marinó, og Gústi að skella okkur í helgarferð til köben í águst. Sú ferð heppnaðist gjörsamlega fullkomlega, og við ákváðum að svona ferð yrði farin á hverju hausti hér eftir :)

Í lok ágúst 2005 var haldið í ferð númer 2, og aftur varð Köben fyrir valinu. Stofnhópurinn frá fyrra ári var mættur, ásamt þremur öðrum nýliðum, það voru snillingarnir Ingvar, Leó og Valbjörn.

Fáum myndbrot:

:)

Við erum allir mjög hagsýnir menn, og þess vegna tókum við Limmó á völlinn, þar sem það var ódýrast.. fyrir utan það að fara á einkabílum eða taka flugrútuna.. ;)

Núna er komið að ferð númer 3.. en ákveðið var að breyta til og fara til Amsterdam í staðinn fyrir köben. Í Amsterdam er fullt af söfnum sem við ætlum að skoða, ásamt því að fá okkur nokkra bjóra og fara út að borða á hverju kvöldi. Og í raun bara að lifa eins og kóngar. 3 úr hópnum í fyrra eru dottnir út, þeir Ingvar, Lebbi, og Gaui Mar komast ekki með í ár. En það kemur einn nýliði inn sem mun pottþétt bæta þann missir úr. Það er enginn annar en hinn magnaði Aðalbjörn Sigurður Filippusson, eða Alli Filla, eða Alkapuss sem ætlar að slást í för með okkur! :)

Snillingur

Jebb Jebb, þannig að ég, Elli, Guðni, Gústi, Valli og Alli erum að fara til amsterdam núna á föstudaginn, og komum tilbaka á mánudag, stoppum í 3 nætur á hóteli í hjarta Amsterdam!!  :)

ÞVÍLÍK MENNING SEM ÞETTA VERÐUR!!!! ;)

 

 

11 Comments

I’m alive!

Ætli það sé einhver sem komi á þessa síðu lengur ? Ég efast um það því lítið hefur verið bloggað undanfarið!
En ástæðan fyrir bloggleysinu er náttúrulega sú að við Fanný fórum í sumarbústað í viku á Hellu. Þvílíkt lúxus líf sem það var.. Við kíkktum á nokkra skemmtilega staði á suðurlandinu, s.s. Dyrhólaey, Vík í mýrdal, Seljandafoss (og bak við hann), Fjórhjól í Bakkafjöru, og svo náttúrulega testuðum við sundlaugarnar á Hellu, Hvolfsvelli og Skeiðarlaug. En þess á milli var bara legið í leti.. farið í nuddpottinn, eða slakað á fyrir framan sjónvarpið og borðað góðan mat. Svo líka fengum við magnaða gesti, Magnús, Hulda og Grímur skæruliði komu til okkar á laugardag – sunnudag, og svo komu Valli og Jóhanna á sunnudag til mánudags. En þetta var fullkomin vika og ég mæli með því að fara í bústað ef fólk vill almennilega afslöppun! :)

Eins og sjá má er þetta algjör lúxus bústaður, með öllum hugsanlegu græjum sem þú þarft. Við eigum pottþétt eftir að taka nokkrar helgar þarna í vetur.

Nokkrir Thule teigaðir þarna.. ;)

 

Síðasta laugardag, fórum við á Ljósanótt í keflavík, vorum þarna frá 19:00 – 23:00 alveg helvíti magnaður anskoti. Sálin og fleiri að spila þarna á sviðinu og síðan kom flugeldasýning dauðans. Djöfull sem hún var flott og það var meira segja logn þarna (örugglega í fyrsta sinn í 7 mánuði) ;)  þetta var svona 10x flottari og stærri sýning en flugeldasýningin sem var á menningarnótt, bara snilld.

:)

Svo er það náttúrulega mál málanna! Það er hann Magni. Gaurinn er kominn í úrslitaþátinn í Rockstar! Það er náttúrulega frábært mál, og hann hefur svo sannarlega staðið sig vel. Hörku söngvari hér á ferð, og ég held að hann sé ekkert á leiðinni heim á klakann.. það rignir yfir hann tilboðum í USA um plötusamninga og ef það er eitthvað vit í hausnum á honum, þá náttúrulega stekkur hann á það og græðir fullt af peningum (vonandi).

En djöfull er gaman af því hvað við íslendingar erum KLIKKAÐIR þegar kemur að einhverju svona. Það eru gjörsamlega allir hérna á klakanum sem styðja við bakið á honum. Og við kjósum svo mikið að kerfin hjá símafyrirtækjunum hrynja! Þetta er náttúrulega bara tær snilld og ekkert annað. Við erum svo lítil þjóð að það er rugl… frábært að sjá þennan svakalega stuðning. En fyrir hans hönd.. þá vona ég að hann vinni þetta ekki, Gilby og Tommy eru svoddan sýruhausar. Jason Newsted er eini alvöru naglinn í þessu supernova bandi.. enda var hann í Metallica frá 1986-2001.. í 15 ár!.. pælið í því.

Netheimurinn er líka alveg að missa sig í þessu.. ég heyrði í gær á Bylgjunni að það væri til heimasíða þar sem þú getur “Magni-fy-að” þig. Sem virkar þannig að þú sendir inn mynd af þér, og færð senda mynd til baka þar sem þú ert sköllóttur með hökutopp!!! HEHEHEHHE Þvílíkt RUGL!! :)

Magni

 

9 Comments