Archive for October, 2006

Útlendingar á Íslandi

Jæja kæru vinir, það er bara kominn vetur. Það er nú ekki alslæmt… maður er samt alltaf einhvern veginn þreyttari á þessum tíma árs, þegar er orðið dimmt klukkan 15:00 á daginn. Það fara að koma jól.. :)

En yfir í annað……………

Hafið þið fylgst með fréttum síðustu vikna ?? Maður er bara í sjokki. Fyrir c.a. mánuði var stúlku nauðgað við MR, fyrir 3 vikum var annari stúlku nauðgað við Þjóðleikhúsið, helgina eftir það var erlendri stúlku keyrt upp í sveit og nauðgað af erlendum manni, og núna síðustu helgi þá ráðast 4 erlendir menn, 2 pólverjar og 2 lettar á stúlku á viktor og reyna að nauðga henni. Maður stúlkunnar reynir að hjálpa henni, og þá eru lamdar úr honum 9 tennur og hann liggur meðvitundarlaus eftir.
Ég verð bara brjálaður á því að hugsa um þetta. Hvers konar þjóðfélag er þetta að verða ??? Og hvað gera yfirvöld ?.. þau sleppa mönnunum eftir yfirheyrslur!! Fávitar. 
Núna er verið að bíða eftir DNA úr þessum 5 útlendingum til að athuga hvort þeir hafi komið við sögu í fyrstu 2 nauðgununum.

Eigum við ekki bara að fara að slaka aðeins á í því að dæla útlendingum hingað til lands ef þeir geta ekki hagað sér almennilega ? Eigum við ekki að fara að skylda þessa útlendinga sem flytja hingað til að aðlagast Íslandi og Íslendingum? t.d. taka þau í málfræðipróf eftir 2-3 ára aðlögun, og ef þau geta ekki gert sig skiljanlega á íslensku, þá bara bæbæ.. drullist aftur til ykkar heima helvítis hyskið ykkar. 

Sjáið FELLAHVERFIÐ.. þar eru útlendingar búnir að taka völdin, og íslendingar þora varla að búa þar. Haldið þið að það sé einhver tilviljun á því að 100fm íbúð þar kostar 13 milljónir ?

Hvernig verður þetta þegar hægist á hjá iðnaðarmönnunum, og útlendingarnir sem sætta sig við helmingi lægri laun fara að taka verkefni af þeim íslensku ? Sjáið þið ekki bullið sem við stefnum í ????

Við þurfum að hætta að taka við hvaða útlendingum sem er, og fara aðeins að taka á þessu af meiri hörku. Og svo er það annað.. við íslendingarnir megum ekki tala um þetta eða hafa skoðun á þessu.. ef við gerum það, þá erum við rasistar!! Hvaða kjaftæði er þetta eiginlega!

Ég er ekkert að segja að allir útlendingar séu slæmir, ég þekki t.d. Marek sem er pólverji.. hann á íslenska konu (Berglind vinkona Fannýjar). Hann er alveg eðalgaur, og er á íslensku námskeiði. Ekki skemmir fyrir að hann drekkur mikinn bjór og eldar góðan mat (enda kokkur þarna á ferðinni).

En hvað segið þið annars um þetta ???

19 Comments

Friday!!

Föstudagur!!!

Vikan er allt of fljót að líða..
Ég skellti mér á árshátíð Siglfirðingafélagsins á nordica síðasta laugardag. Djöfulsins stemning var þar.. leiðinlegt fyrir Fanný að missa af þessu, en hún var í Osló að stjórnmálast.

Ég hef oft áður farið á siglfirðinga árshátiðina, en þetta var sú allra besta.. því þarna var ekki bara eitthvað eldgamalt fólk, heldur fólk á öllum aldri.. svona frá 18 ára. – 90 ára. Og það fyndna var að mér fannst bara eins og ég væri að djamma á Sigló, því það voru svo ótrúlega margir þarna sem eru búsettir á Siglufirði.. bara endalaus snilld :) Mæli með þessum hátíðum og ég mæti pottþétt aftur að ári! :)

Í stuði með guði ;)
“sjáið hvað glampar á ennið á mér.. sem fer hækkandi by the way”

Í kvöld er svo innflutnings partý hjá Díönu og Einari.. þar er nokkuð ljóst það verður teigaður Jaggari við það tilefni.. ;)

Svo á morgun mun ég hjálpa yfirhnakka alheimsins að flytja.. Jebb jebb þið lásuð rétt.. Sigurgeir Haukur Ólafsson.. eða bara Geiri eins og hann er yfirleitt kallaður er að fara að flytja á Goldfinger, eða allavega í næsta nágrenni við hann. Því hann ætlar að flytja úr Efstasundinu og upp í Kópavog!

Sunnudagurinn er náttúrulega aðaldagurinn. Besti dagur vikunnar.. ekki spurning ;)
En á sunnudaginn klukkan 12:00 munu mínir menn í man.utd taka á móti liverpool á Old trafford. Þetta eru uppáhalds leikirnir mínir.. kannski út af því að margir vinir mínir eru liverpool menn, og það er bara svo gaman að sjá united rúlla yfir þetta skít lélega liverpool lið. En þess má geta að liverpool er í 11.sæti núna og united er í sæti númer EITT :)
En ég býst við hörkuleik.. en ég þori ekki að spá um hann því ég er búinn að missa spádómshæfileikana eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir.

Smith-arinn
Alan Smith snillingur er að koma sterkur tilbaka eftir erfið meiðsli.. Hann mun vonandi koma við sögu í leiknum á sunnudag og tækla einhvern í hálsinn… Þessi maður sér bara blóð.. honum finnst mjög þægilegt að fá gat á hausinn.

Fokk it… ég ætla samt að spá… mínir menn í united vinna þetta öruggt 2-0 !!

10 Comments

Að hitta naglann á höfuðið.

Djöfull geta góðar hugmyndir leitt af sér mikið af peningum!

í febrúar í fyrra stofnuðu þeir félagar Chad Hurley 29 ára og Steven Chen 27 ára vefsetrið http://youtube.com/ sem er alveg brilliant vefur í alla staði. Á þessum stutta tíma náði vefurinn gríðarlegum vinsældum og eru gestir um 100.milljónir á degi hverjum!

Jæja… Google risinn keypti þetta fyrirtæki í vikunni af “guttunum”.. fyrir 1.65 milljarð dollara sem samsvarar 114 milljörðum íslenskra króna!!!

:)
Helvíti gott hjá þeim Chad og Steven mundi ég segja :)

allavega eiga þeir eftir að hafa nóg af seðlum milli handanna næstu árin..

… þannig að … ef þið fáið góðar hugmyndir.. Ekki hika við að framkvæma þær! ;)

9 Comments

BULIMIA

Ef ég fletti upp orðinu ”Bulimia” upp í orðabók aldamóta, þá kemur upp: “sjúklega mikil matarlyst”.

En þeir sem hafa þennan sjúkdóm borða sjúklega mikið, alveg þangað til þeir geta ekki meira.. síðan nokkrum mínútum eftir það, þá æla sjúklingarnir öllu upp til að fitna ekki.

Í ljósi þessara staðreynda er nokkuð ljóst að við Maggi Jóns (mágur) erum haldnir þessum hrikalega sjúkdómi ;)  
Við erum reyndar með sérstakt afbrigði af Bulimiu… Við borðum þangað til við getum ekki meira, en í staðinn fyrir að æla þá bara setjumst við niður og fáum okkur einn kaldann! Þetta er ástæðan fyrir því að við erum hnöttóttir :)

En nú verður tekið á því… minni matar skammtar fyrir mig hér eftir, og harðari æfingar!!!

Best að fara út og hlaupa af sér spikið!

Keikó kveður í bili

nammi namm

7 Comments