Archive for November, 2006

“Við” eigum Teddy Sheringham

Þá er það orðið staðfest, að það er gott að eiga milljarðamæringa sem vin. Eggert Magnússon formaður KSÍ er búinn að kaupa enska úrvalsdeildarliðið West Ham sem er þessa stundina í 16. sæti.

:)
“Hvað er í gangi þarna?”

Félagið kostaði 85 milljónir punda eða 11.3 milljarða íslenskra króna. Hver borgar brúsann ? Jú auðvitað fótbolta áhugamaðurinn Björgólfur Guðmundsson milljarðamæringur með meiru. Hvað ætli sé langt þangað til Björgólfur Takefusa fari til West Ham ?? Og ætli komi svona West Ham æði núna ?? eins og Stoke djókið?

Eggert ætlar að segja af sér formanns embætti KSÍ .. og ég segi bara… Halelúja, gott að losna við þennan einræðisherra úr brúnni.

Einráður

 

8 Comments

Frost á fróni

Djöfull er ógeðslega kalt úti.. Hressandi ekki satt? ;)

Ég var að lesa grein eftir Sigga storm þar sem hann bendir á aðstæður dagsins í dag.. -6 gráður og 13 metrar/sec er eins og að vera í -35 gráðu frosti í logni!! Best að fara í snjóbretta úlpuna!! :)

Tjörnin í Reykjavík.. í frostinu:

kalt.JPG
(þessari flottu mynd var stolið af visir.is)

hey.. og ef ykkur leiðist í kuldanum reynið þá að segja þetta 10 sinnum hratt: (ég veit að þetta er gömul þraut.. en alltaf jafn skemmtileg samt!)
 

Grillið glamraði
Grillið glamraði
Grillið glamraði
Grillið glamraði
Grillið glamraði
Grillið glamraði
Grillið glamraði
Grillið glamraði
Grillið glamraði
Grillið glamraði

Það er ekki séns að þið getið þetta! ;)

12 Comments

Íslendingar eru fljótir að gleyma

Ég veit ekki hvort ég eigi að hlægja eða gráta..

Árni Johnsen “fyrrverandi” stórglæpamaður er að öllum líkindum á leiðinni inn á Alþingi okkar Íslendinga.

RUGL

Ætli hann byggi sér fleiri hús á kostnað okkar skattgreiðenda ?

… Það verður spennandi að fylgjast með honum!

Ekki slæmt

21 Comments

Frábær helgi að baki, fáum nokkrar myndir.

Bestur

:)

Snilld

Í dag eru 20 ár síðan Sir Alex Ferguson tók við Manchester United.
Þessi skoski snillingur er alveg einstakur á allann hátt.
Hann ræður öllu.. og ef einhverjir spila ekki eftir hans reglum, þá bara eru þeir látnir taka pokann sinn. Enginn annar stjóri myndi láta sér detta það í hug að láta stjörnur eins og Roy Keane, David Beckham, Og Ruud van Nistelroy fara. En allt voru þetta hárréttar ákvarðanir hjá kallinum (Svona eftirá séð.. þó maður hefði verið gáttaður á þessu á sínum tíma).

Til hamingju með 20 ára starfsafmælið kæri vinur, vonandi verður þú a.m.k. önnur 10 ár í viðbót!

Bestur

14 Comments

Föstudagsbrandarinn (18+ að þessu sinni)

Enn og aftur föstudagur, ekki kvartar maður yfir því :-)

… en djöfull er ég ánægður með kommentin hjá ykkur í síðustu færslu.
Það er greinilegt að það hafa allir skoðun á þessum málaflokki. Ég vil benda ykkur á grein Jóns Magnússonar “Ísland fyrir íslendinga?” á blaðsíðu 16 í Blaðinu á miðvikudag.. hann er að fjalla um þennan sama málaflokk… og auðvitað er hann stimplaður (eins og ég) rasisti.

VOFF

En snúum okkur að máli málanna í dag, það er föstudags brandarinn. Hann er frekar grófur að þessu sinni, þannig að ef þú ert ekki orðin 18 ára, smelltu þá hér

UPPVASKIÐ

Jói varð fyrir því láni að frændi hans í Ástralíu sendi honum
glæsilegt fallegt reiðhjól. Jói var að sjálfsögðu afar ánægður með
nýja hjólið sitt og áleit að slíkur kostagripur væri vandfundinn. Einn
hængur var þó á.

Með hjólinu fylgdi vaselín dolla og miði sem á stóð að ef það skildi
fara að rigna þá þyrfti Jói að bera vaselín á hnakkinn, en hann var úr
kengúrúskinni og myndi skemmast ef þetta væri ekki gert.

Jóa fannst þetta nú bara lítið mál, settist á hjólið sitt og hjólaði
af stað. Þar sem hjólið var svo frábært þá gleymdi hann sér alveg, var
kominn langt út í sveit og það var að koma myrkur. Hann stoppaði því á
næsta bóndabæ og bankaði á hurðina.

Bóndinn kom til dyra og sagði að honum væri velkomið að vera í
kvöldmat og gista en það væri þó ein regla í þessu húsi. Það væri
STRANGLEGA bannað að tala á meðan á kvöldverðinum stæði.

Sá sem talar þarf að vaska upp.

Jói leit inn í eldhúsið og sá þriggja mánaða uppvask, grænt og
ógeðslegt. Ákvað hann á þeirri stundu að halda kjafti á meðan á
matarhaldinu stæði. Kvöldmaturinn hófst og varð Jói var við að heimasætan
var nú ansi fögur og byrjaði hún um leið að reyna við hann. Hann stóðst ekki
mátið og átti við hana mök undir matarborðinu. Bóndinn var að sjálfsögðu reiður en
sagði þó ekki neitt. Maturinn hélt áfram og tók Jói eftir því að yngri dóttir
bóndans var nú ekki ófríð heldur og áhugi hennar á honum var ansi mikill. Hann
átti við hana kynmök í horni eldhússins.

Bóndinn var orðinn sjóðandi vondur en sagði þó ekki neitt, enda mikið
uppvask í eldhúsinu.

Maturinn hélt áfram og Jói tók eftir því að kona bóndans var nú ekki
slæm. Hún vildi helst ekki vera útundan svo Jói skellti henni upp á borð og
tók hana fyrir framan bóndann.

Bóndinn var orðinn sjóðandi vondur, hissa og hálf grenjandi yfir
dirfsku Jóa. Maturinn hélt áfram og enginn sagði neitt. Í því leit Jói út um gluggann
og sá að það var að byrja að rigna, hann reif upp vaselín dolluna.

Þá stóð bóndinn upp og öskraði:

“JÁ NEI NEI ÉG SKAL BARA VASKA UPP”.

12 Comments