Archive for December, 2006

Iron Master

Ég er mjög svo ánægður með Kompás að hafa flett ofan af iron master-num og graðnaglanum í Byrginu. Fólk talar um að fréttaþátturinn Kompás sé að dæma manninn, hvað er að ykkur ? Ef kompás væri ekki til, ætti hann eflaust eftir að skemma fleiri og fleiri konur… Sigmundur Ernir sagði í kastljósinu.. að þeir hefðu ALDREI farið með þessa frétt í loftið.. nema fyrir þær sakir að þeir voru 100% vissir um sekt hans, vegna gagna sem þeir höfðu undir höndum… Ég veit að það eru mjög margir ósammála mér í þessum efnum. En þetta er mín skoðun.  Og hvað gerist í kjölfar þáttarins.. jújú fleiri konur koma fram með sömu söguna. T.d. stúlkan sem kom fram í Ísland í dag – í gær.. hún er með endalaus gögn undir höndum af þeim í kynferðislegum leikjum, hún er með video, myndir, fullann síma af sms, og endalaust af tölvupóstum. Og hún var í sambandi við hann í 2 ár, og hann var síðast heima hjá henni með leður svipuna fyrir 3 vikum. Og ekki nóg með það, heldur sveik hann líka 4 milljónir út úr henni sem hún fékk í slysabætur eftir bílslys í fyrra.. maður á ekki til orð yfir þessu. Sjálfsagt hefur Byrgið gert ýmislegt gott fyrir ákveðna einstaklinga, það verður ekki frá því tekið. En þessi maður sem er í forsvari fyrir þetta “kristilega líknarfélag” verður að víkja. Er ÉG búinn að dæma manninn út frá fjölmiðlum ? Já það er nokkuð ljóst.

steikt

Hvað hefur fleira gerst ?
jújú pólitíkusinn á heimilinu hún Fanný Guðbjörg er í 3. sæti á lista framsóknar fyrir næstu alþingiskostningar, ekki slæmur árangur það! :) Það væri nú ekki slæmt að vera í sambúð með þingkonu (djöfull mundi ég beita þrýstingi á að koma bjórnum í matvörubúðirnar).. þannig að Reykjavíkur búar.. þið vitið hvað á að kjósa! ;)

22. desember í dag. Óli Biddýar á afmæli í dag, orðinn 25 vetra gamall, til hamingju með það frændi! :)

Við Fanný og Oddný leggjum í hann norður á Sigló í dag til að vera í ró og næði yfir hátíðarnar. Djöfull verður það ljúft. Vonandi bara að við komumst á leiðarenda því það er spáð brjáluðu veðri seinni partinn í dag! En maður er öllu vanur í þessum efnum eftir 23.desember 2004, þar sem ég braust í gegnum skafla frá ketilás til Siglufjarðar. Þannig að ég hef ekki stórar áhyggjur af þessu! :)

Já og það er ekki á hverjum degi sem landsliðsmaður í fótbolta býður manni í afmælið sitt (kíkkið í gestabókina). Grétar Rafn Steinsson verður með svaðalegt afmælispartý á pravda 6.janúar þar sem öðlingarnir Gotti og Eisi (hverjir aðrir) leika fyrir dansi!!

Jæja börnin góð, ég segi bara gleðileg jól og hafið það sem allra best um jólin!

9 Comments

Föstudagsgleðin

Föstudagsbrandarinn að þessu sinni snýst að sjálfsögðu um fótbolta.. í tilefni þess að United burstuðu Benfica á miðvikudag og unnu sinn riðil í meistaradeildinni :)

Einu sinni voru þrír fótbolta áhugamenn að þvælast um Sádi Arabíu.
Einn hélt með Leeds, annar með Liverpool. en sá þriðji með  Man. Utd.
Auðvitað voru þeir allir fullir, en það er stranglega bannað í Saudi Arabíu,
þannig að þeir voru allir handteknir. Svo voru þeir leiddir fyrir sheikinn.
Sem sagði: Vegna drykkjuskapar á almannafæri verðið þið allir hýddir 50
svipuhöggum.
En vegna þess að í dag er þjóðhátíðardagur hjá okkur ætla ég að veita ykkur
tvær óskir hvorum.
Kom svo að því að hýða átti Leedsarann svo hann bað um að fá kodda bundinn á
bakið á sér og bestu fáanlega læknishjálp ef með þyrfti. kom svo að því að
hann var hýddur, en koddinn dugði ekki nema í 15 svipuhögg þannig að hann
varð alblóðugur og næstum dauður eftir þessa meðferð en fékk læknishjálp.
Síðan kom að! Liverpoolmanninum….Hann sagði: ég vil fá
tvo kodda bundna á bakið á mér, og ef með þarf þá bestu læknisaðstoð sem um
getur.Svo kom að hýðingunni. koddarnir dugðu í 30 svipuhögg. Blóðugur en á
lífi fékk Liverpoolmaðurinn góða aðhlynningu og var nokkuð kátur.
Loksins kom að United manninum. Hann sagði hátt og snjallt…BÆTIÐI VIÐ 200 svipuhöggum
og bindið helvítis Liverpoolmanninn á bakið á mér.  :) :)

Og svo einn fyrir Geira í lokin:

Question:
You’re trapped in a room with a Lion, Cobra snake and an Arsenal Fan. You have a gun with two bullets. What should you do?
Answer:
Shoot the Arsenal Fan. Twice.

 

Góða helgi! :)

7 Comments

Jólin eru að detta inn

Jæja góðir gestir!! núna eru aðeins 20 dagar í aðfangadag! Djöfull sem tíminn FLÝGUR áfram! :)

:)

Við Fanný, Valli, Jóhanna og Gústi skelltum okkur á Rockstar tónleikana á fimmtudagskvöldið í laugardagshöll. Þvílík og önnur eins stemning!! Váaaahhhhhhh þetta var alveg klikkað!
Fáum smá myndbrot:

stappað
Það var vel stappað í höllinni

Valli og co :)
Valli, Jóhanna og Gústi í stúkunni góðu :)

Á föstudaginn eftir vinnu héldum við Fanný, Díana, Einar og Karólína (dóttir Einars) í bústað á Hellu. Þetta er sami bústaðurinn sem við Fanný eyddum heilli viku í síðasta sumar! Djöfulsins snilldar helgi var þetta… það var bara tjillað og hangið í pottinum með jólabjór í hönd. Reyndar gerði ég heiðarlega tilraun til að spila við þessa spilafíkla Rommý… en vegna áhugaleysis hjá mér og þegar ég var farinn að henda út tvistunum (sem gilda allt – fyrir þá sem EKKI vita það) þá hætti ég í miðju spili og fór bara í pottinn í staðinn.. ;)

En þetta var ljúf helgi frá a – ö … eigum pottþétt eftir að skella okkur aðra helgi einhvern tímann eftir áramót. Enda er maður bara c.a. 1.5 tíma að keyra á Hellu!


Bústaðurinn er sannkallaður lúxus bústaður, með öllum þægindum


Hann er aðeins 2ja ára gamall.. með arni og öllum pakkanum


Good times.. Þarna voru teigaðir jólabjórar og jager! ;)

Ekki skemmdi fyrir að Einar er kokkur hjá Sigga Hall, þannig að hann sá um að elda 1.5kg nautalund á laugardagskvöldið, nautakjöts áhugamaðurinn (ég) var nú alveg helvíti sáttur við það eins og gefur að skilja.. enda var steikin gjörsamlega fullkomin! :)

6 Comments