Archive for February, 2007

x-samfó .. já nei takk.

Ég var að vafra um á netinu og datt inn á bloggið hjá Össuri Skarphéðinssyni. Ég gat ekki annað en hlegið af pistlinum hans “Ef ég verð fjármálaráðherra” (sem hann vonandi aldrei verður, hvorki fjármálaráðherra né einhver annar ráðherra).

Þar endar hann pistil sinn á þessari setningu:
“guð forði bönkunum frá því að gera annaðhvort mig eða Jóhönnu Sigurðardóttur að arftaka Árna Matt.”
Ekki veit ég hvað hann á við þarna.. en það er augljós hótana tónn í þessu hjá kauða. Hann kannski gerir sér ekki grein fyrir því að hann er að hóta heilli starfsstétt sem spannar um það bil 8000 starfsmenn í heild sinni.

Ossur

Jújú það má alltaf kvarta undan háum þjónustu og vaxtagjöldum, en meirihluti tekna íslensku bankana undanfarin ár kemur erlendis frá sem skilar sér svo beint í ríkiskassann.

Til dæmis í fyrra greiddi Kaupþing mest allra lögaðila í skatt.. rúmlega 7 milljarða, Þetta er mesta einstaka skattgreiðsla sem innt hefur verið af hendi á Íslandi og í fyrsta sinn sem fyrirtæki greiðir meira í skatt en Fjársýsla ríkisins.
Þessar skatt greiðslur jafngilda því að standa undir útgjöldum ríkisins til Háskóla Íslands.. ekki slæmt það!

14 Comments

Árgangur ’80 fór á kostum á laugardag

Það er nokkuð ljóst að Palli Helga hafði rétt fyrir sér þegar hann sagði við Ingu Jónu dóttur sína og bekkjarsystir mína: ”Veistu það Inga mín, ykkar árgangur er sá erfiðasti sem ég man eftir.”

Snillingur
Mynd fengin að láni hjá sksiglo.is

En við kunnum að skemmta okkur og það gerðum við svo sannarlega á laugardaginn, þar sem við mættum 15 stykki heim til Árna Geirs í árbæinn. Sumir voru feimnir svona til að byrja með, en þegar Tópas og Hot and Sweet var farið að renna um æðarnar þá var það ekkert vandamál ;)

Síðan var haldið í bæinn um 1:30 – reyndar voru ekki allir sem komust í bæinn vegna þreytu en það var allt í góðu. Við fórum á Hressó þar sem var tjúttað eitthvað fram eftir. Mig minnir að ég hafi farið heim rúmlega þrjú, glaður og sæll með frábært kvöld.

Valli tók helling af myndum í partý-inu.. aldrei að vita nema ég birti nokkrar hér bráðlega.

Þetta er eitthvað sem við eigum pottþétt eftir að gera aftur, og því fyrr .. því betra! :)

Hvað gerðist fleira um helgina ?

jújú.. þetta gerðist:

Britney Spears

hvað er fólk að hneykslast á þessu ? hún hlýtur að ráða því sjálf hvernig hún klippir sig, þó svo að þetta komi til með að hafa aðeins meiri áhrif… því hvað ætli séu mörg þúsund stúlkur sem vilja vera ALVEG eins og hún Britney?

En yfir í mál málanna. United spilar í meistaradeildinni á morgun.. klukkan 19:30 við Lille. Þó svo að Lille sé með mjög öflugt lið, þá spái ég því að mínir menn vinni þá með öruggum sigri 1-3

Roooooney!!

6 Comments

Föstudagur

Anna vinkona mín Smith er dáin, hún fannst á hótelherbergi í Hollywood meðvitundarlaus. Eins og allir vita var hún milljarðamæringur eftir að hún gifstist 89 ára gömlum auðjöfri, þá var hún aðeins 26 ára. Hún lék í bíómyndum, auglýsingum, sat fyrir í playboy, og var meðal annars “leikfang ársins” 2003. Strax eru komnar fram samsæriskenningar um dauða hennar… Það er líklegast þjóðarsorg í USA núna!

annanic.JPG

En yfir í annað.
Það er föstudagur í dag sem er gott, helgin er fullbókuð því það er vinnustaðapartý eftir vinnu í dag og það mun eitthvað standa fram á kvöld.

En svo á morgun, þá verður HIÐ ÁRLEGA ÞORRABLÓT Lindargötu gengisins, en Ingvar, Gaui Marinó og Böddi eru mennirnir bak við þetta, enda villimenn á háu stigi… við erum að tala um þorrahlaðborð af bestu gerð, ekkert nema handónýtur matur og dragúldinn, svo verður bara drukkið íslenskur brennsi með þessu til að lina þjáningarnar. Sem betur fer verður ekkert færeyskt Skerpikjet núna, en við fengum slíka gjöf fyrir síðasta þorrablót. Það var mesti viðbjóður sem ég hef á ævinni smakkað, og íbúðin Ingvars og Lindargatan öll í heild sinni angaði alveg HROTTALEGA í viku á eftir.

shit

Góða helgi börnin góð, og gangið hægt um gleðinnar dyr ;)

múhahah

6 Comments

7.feb 2007 – góður dagur

Það er mjög fínt og jákvætt í alla staði að vera gráhærður, þunnhærður, feitur og ELD gamall. (OK þetta er kannski aðeins of gróf lýsing)

Í tilefni dagsins ætlar Fanný með mig á ELDsmiðjuna í kvöld, þar verður borðuð eðal pizza og STÓR Stella drukkin með.

14 Comments

X Bekkurinn var náttúrulega lang flottastur :)

Verð að deila með ykkur bekkjarmynd sem einhver tók af okkur fyrir utan grunnskóla siglufjarðar í gamla daga, veit ekki nákvæmlega hvaða ár þetta var tekið en þó er líklegt að þetta sé 1986 eða 1987 en myndin er fengin “að láni” frá árgángs síðunni okkar (linkur hér til hægri).

Snilld

Efri röð frá vinstri:
Bára Kristín Skúladóttir, Kolbrún Passaro, Stefán Heiðar Erlingsson, Ingólfur Kristinn Magnússon, Bjarni Sigurður Kristjánsson, Guðmundur Óli Sigurðson, Ólafur Símon Ólafsson, Inga Jóna Pálsdóttir, Ína Sif Stefánsdóttir.

Neðri röð frá vinstri:
Anton (man ekki hvers son), Andri Þórhalsson, Ásta Andrésdóttir, Ingvar Már Leósson, Agnar Friðberg Þór Haraldsson, Heiðar Freyr Úlfarsson, Vigdís Rut Andersen, Þórunn Jóhannesdóttir.

No Comments

Fólk er fífl

Djöfull var ég pirraður í gær þegar ég náði í bílinn minn til Valbjörns (sem er by the way Mazda3 árgerð 2006). Það var eitthvað fífl búið að bakka all svakalega aftan á hann og sá hinn sami stungið af vettvangi… Sem betur fer er ég með bílinn í kaskó, en ég þarf samt að borga 50þús í sjálfsábyrgð, og tryggingarnar rest.. og samkvæmt réttingarverktæðinu í morgun er þetta tjón upp á c.a. 200.þús kall… Ótrúlegt hvað fólk getur verið illa innrætt!

!!!!!!!!!!!

Mér var einnig tjáð það á réttingarverktæðinu að það væri alveg endalaust af svona tilvikum.. þ.e.a.s. að fólk stingi af. Nokkur tilvik í VIKU sem bara þetta tiltekna verkstæði tekur að sér! ARGHH

En lítum á björtu hliðarnar:
Bíllinn verður lagaður eftir 2 vikur.
Fanný er byrjuð að blogga aftur (linkur hér til hliðar).
United vann Tottenham 0-4 í gær.
Og ég á afmæli eftir 2 daga ;)

Bjarni bjartsýni

10 Comments