Archive for March, 2007
Besti miðjumaður í evrópu
Spáin mín brást, en var aðeins einu marki frá
EN
Eins og frændi minn og vinur hann Brynjar Harðarson segir og hefur alltaf sagt! Þá er John O´shea einfaldlega lang besti alhliða miðjumaður í evrópu… það sást greinilega í dag þegar hann tryggði Manchester verðuskuldaðan sigur á tiltölulega lélegu liði Liverpool…

Stórleikur á laugardag! :)
Jæja.. þá er komið að því, stórleikur í vændum hjá mínum mönnum á laugardaginn klukkan 12:45, þá mun Liverpool taka á móti Manchester United. Þetta eru skemmtilegustu leikirnir að mínu mati, allir leggja sig 200% fram.

Rooney lifir fyrir stóru leikina, og því spái ég því að hann skori fyrsta markið.

Svo kemur Ronaldo og tryggir þetta 0-2

Þar hafið þið það… ég spái semsagt leiknum 0-2 mínum mönnum í vil.
Hverju spái þið lesendur góðir ? Verðlaun í boði fyrir rétta spá!