Archive for May, 2007

Dæmi um harða stuðningsmenn

Ég verð að setja þetta screenshot inn.. Sverrir félagi minn er einn harðasti poolari sem ég veit um, hann var kominn á Players í morgun - 8 klukkutímum fyrir leik til að hita upp!! :)

sverrir

 

7 Comments

Siglfirðingar “eignast” Ráðherra

Í kvöld var tilkynnt um ráðherraskipan í komandi ríkisstjórn samfó og sjálfstæðisflokks, Siglfirðingurinn Kristján Lúðvík Möller verður næsti samgönguráðherra.

Möllerinn

Til hamingju Stjáni Möller.

Annað….  þegar ég bloggaði í gær um “síðasta fótbolta bloggið” þá var ég að sjálfsögðu að tala um síðustu færsluna um United í góðan tíma ;)

En einn stærsti leikur ársins á morgun… og ég verð bara að tjá mig aðeins.. Liverpool mætir AC Milan í meistaradeild evrópu.
Einn góður vinur minn og dyggur stuðningsmaður AC Milan er búinn að leggja undir 16.000 kall á sína menn.. þannig að það er eins gott að þeir vinni!

Mín spá er sú að AC muni fara á kostum á morgun og vinna sannfærandi sigur…. 3-1

2 Comments

Síðasta fótbolta bloggið í bili.. :)

Jæja, eins og allir vita þá vann Man United ensku úrvalsdeildina, þeir einfaldlega spiluðu lang besta og skemmtilegasta boltann, þannig er nú það.

Fyrir ykkur sem misstuð af því þegar þeir fengu titilinn, þá er video af því hérna.. Enjoy :)

DuvELRJi2po

2 Comments

gsm blogg

Godan daginn. Nu er klukkan 10 a thessum fina laugardags morgni… Eg var ad setja forrit i gsm simann minn sem gerir mer thad faert ad blogga beint ur simanum. Ekki veit eg hvort ad eg noti thennan fidus mikid.. en taeknin er allavega til stadar… gaman af tvi :-)

8 Comments

healing process..

Jæja.. þá er maður að verða búinn að þurrka úr sér tárin eftir að AC milan burstuðu mína menn 3-0 !! Eins og glöggir lesendur síðunnar hafa séð, þá tók ég þessa reiði að sjálfsögðu út á Elíasi Bjarna Ísfjörð. En það var bara því hann var með mesta böggið á meðan á þessum leikjum stóð!!

En nú er lundin að léttast og við vinnum bara FA bikarinn og ensku deildina með stæl. Og svo fáum við ömurlegan úrslitaleik í meistaradeildinni, þar sem AC Milan mun vinna Liverpool svona c.a. 6-0

Það munaði litlu að við kæmumst alla leið, eins og þessi treyja hérna sýnir okkur: (Það hefur pottþétt einhver púllari búið þessa mynd til).

AIG

Góða helgi kæru landsmenn!

1 Comment

No words needed!

United

12 Comments

Ég er á lífi kæru vinir

Afsakið bloggleysið undanfarnar vikur og mánuði ;)

En ég bara verð að skjóta inn einni stuttri færslu hérna í tilefni dagsins. Leikur leikjanna er í kvöld. AC Milan – Man.United í undanúrslitum meistaradeildar evrópu. Ef united kemst áfram í kvöld þá mæta þeir Liverpool í úrslitaleik. En tiltölulega slakt lið liverpool sló út chelsea í gær!

Glory glory man united!

Ég hef svo mikla trú á mínum mönnum að ég verð bara að spá þessum leik í kvöld 0-2 united í vil.

Bestur

En núna fer maður að taka sig á í þessu bloggleysi.. gengur ekki lengur! :)

 

5 Comments