Archive for August, 2007

$ÝN 2

Í byrjun mánaðarins hringdi ég í 365 miðla og keypti mér áskrift að sýn2 til að geta horft á enska boltann heima í stofu. Núna 2 vikum síðar er stöðin ekki ennþá komin inn (og já ég er búinn að uppfæra afruglarann hjá mér og gera öll þau trick sem þarf að gera). Það er united leikur í kvöld sem ég að sjálfsögðu verð að sjá.. og þess vegna hringdi ég í 365 miðla fyrir nákvæmlega 47 mínútum síðan til að kvarta yfir þessu.

Nú eru liðnar 48 mínútur og ég er ennþá á bið !! Hvað er að hjá þessu skíta fyrirtæki. Það er ekki nóg með það að þeir OFRUKKA fyrir Sýn og Sýn2 .. heldur er þjónustustigið svo lágt hjá þeim að manni blöskrar…

57 dýrmætar sumarfrí mínútur farnar í bið.. and still counting…

59 mínútur liðnar !”#$%&/!”#$%&/”#$%&/$%&/%&/(%&/(!”#$%&/(

5 Comments

Polskí

Jæja góðir gestir.

Eins og glöggir lesendur Fannýjar hafa séð, þá erum við stödd í Póllandi, nánar tiltekið í Vecerowo sem er nálægt Gdynja og Gdansk. Berglind vinkona Fannýjar er að fara að gifta sig í dag klukkan 17:00. Veislan mun standa frá 18:00 – 06:00 og verða veitingar bornar fram allann þann tíma. Jebb jebb… Pólverjarnir kunna þetta. Verðlagið hérna er gjörsamlega út í hött. Ég fæ bara samviskubit í hvert skipti sem ég borga, þetta er allt svo ódýrt hérna.

tökum smá dæmi.

bjór = 40 krónur
vodka flaska = 300 krónur
jakkaföt, skyrta, bindi og belti = 10.000 krónur
strætó= 19 krónur
matur fyrir 7 á pizza hut (með bjórum) = 1800 krónur
hótel nóttin = 3000 krónur

Hér kann enginn ensku. Þess vegna er gott að kunna “EN PIWO” sem þýðir einn bjór. Nú sit ég á hótelbarnum með einn slíkan þar sem Fanný (veislustjórinn) er í lagningu eða eitthvað fyrir brúðkaupið í dag ;)

Pólverjarnir eru ótrúlega gestrisnir. Alveg gjörsamlega frábærir í alla staði. Í gær þá var haldin 80 manna grillveisla heima hjá foreldrum Mareks (brúðguminn), við löbbuðum í hús nágrannana og tæmdum alla garða og allar stofur af húsgögnum sem við settum svo í garðinn þar sem veislan var haldin.

Það er mikil vodka menning hérna. Þeir eru ekkert að blanda vodkann, heldur frysta þeir hann og drekka svo bara dry.. úr stórum staupum.

Veislan er í kvöld, og á morgun… já þið lásuð rétt, á morgun klukkan 14:00 hefst veislan aftur og þá mun allur bærinn liggja í því. Svo á mánudaginn þá förum við til Hel sem er bær 100km héðan, þar munum við chilla á ströndinni í 4 daga, en þess má geta að hérna úti er 25 – 30° hiti, sól og logn.

Næsta laugardag munum við svo fljúga til Köben og á mánudagskvöld fljúgum við heim til Íslands (13.ágúst)

Við erum búin að taka 300 myndir hérna á 5 dögum, og þetta fer allt á netið þegar við komum heim! :)

4 Comments