Archive for September, 2007

B O O T – C A M P

Sæl kæru gestir.

maður hefur verið latur að blogga.. en hérna koma smá fréttir af mér.

1. Ég er orðinn alltof feitur sekkur.

2. Nú er kominn tími til að gera eitthvað róttækt í málunum.

3. Búinn að skrá mig í 12 vikna Bootcamp námskeið 7:30 – 8:30 á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum.

4. HER-leg heitin byrja á mánudaginn.

5. Markmiðið er að ná 10kg af mér fyrir jól.

Vinur minn og frændi, og brjálaði Man Utd maðurinn Brynjar Harðarson kemur með mér í þennan pakka og ætlum við að hvetja hvorn annann fram í rauðan dauðann og rústa öllum þessum hermönnum í öllum keppnum - einnig ætlum við að koma upp sektar kerfi ef annar hvor okkar mætir ekki.. Þetta verður tekið af FULLUM KRAFTI.

:)

Fiskur og vatn í matinn í kvöld.. svo út að hlaupa.

Batnandi mönnum er best að lifa.. Amen.

kveðja,
Bjarni (Hvalur 2)

25 Comments