Archive for December, 2007

Jólin nálgast

Jæja.. þá eru jólin að detta inn enn einu sinni. Allt klárt á okkar heimili, meira segja búið að pakka inn pökkunum! :)

Þannig að það er ekkert jólastress í gangi… enda er það bara hugarástand. Ekkert til sem heitir jólastress, er það nokkuð ?

Annars gleymdi ég að blogga hérna á síðasta sunnudag, en á þeim degi tóku mínir menn í United sig til og heimsóttu Liverpool á Anfield.. og UNNU 0-1, það þarf engum blöðum um það að fletta að United liðið er sterkara núna en undanfarin ár. Þessvegna verður alveg ótrúlega gaman í vor að vinna deildina og meistaradeildina! (p.s.: þá verður komið 50″ panasonic plasmi í stofuna hjá okkur).

:)

Ronaldo

Góða helgi kæru lesendur, og gleðileg jól ! :)

7 Comments

Ég er á lífi!

Nú er biðin á enda eftir nýju bloggi… lengsta bloggpása frá því að kristjans.com var stofnuð fyrir allmörgum árum hefur litið dagsins ljós. Síðasta færsla á þessari dauðu síðu var rituð 6.september 2007… rúmir 3 mánuðir kæru lesendur. Afsakið óþægindin..  En nú mun væntanlega verða breyting á þessu og ég mun byrja að blogga af alefli frá og með deginum í dag.

Hvað hefur gerst síðan 6.september ? Jú ýmislegt… t.d. er ég búinn að skafa af mér nokkur kíló af fitu og bæta við mig nokkrum vöðvamassa í Bootcamp-inu.
Algjört snilldar æfingarprógram sem ég mæli með fyrir alla. Því miður missti ég Binna Harðar sem æfingarfélaga því hann sleit krossband í fótbolta!! Halló, maður á bara að horfa á fótbolta í sjónvarpinu, ekki spila þessi stórhættulegu íþrótt, en hann kemur vonandi sterkur inn von bráðar.

Það komu reyndar 2 bakslög í prógrammið.. en það var þegar ég var í Barcelona í viku og svo  í Köben í hálfa viku, en slíkar utanlandsferðir bjóða oft upp á mikið steikar át og öl í öll mál. Ég var á Microsoft ráðstefnu í Barcelona.. og ég get alveg mælt með þeirri borg. Mjög flott í alla staði.

Svo fórum við fjölskyldan til Köben í “jólatívolís ferð” þar síðustu helgi.

Fáum mynd:

:)
Halli, Oddný, Pabbi, Mamma, Ingvar, Rebekka Rut, Arna, Ég og Fanný

Það var snilldar stemning í köben eins og alltaf, og við leigðum okkur stóra og góða íbúð við hliðina á strikinu, þannig að það var stutt að rölta í menninguna þar :)

Nú fara jólin alveg að skella á.. og ekki seinna vænna en að klára jólagjafirnar. Við Ingvar bróðir ætlum í okkar árlegu desembers laugavegs göngu næsta laugardag, þar sem lokahönd verður löggð á jólagjafa innkaup. Ég vill bara benda fólki á að fara ekki í kringluna (nema náttúrulega í BT til Leós) né smáralind á þessum tíma árs, komið þið frekar í miðbæinn þar sem stemningin er afslöppuð, og hægt að fá sér STROH og kakó á næsta horni.. ;)

4 Comments