Archive for April, 2008
Stórkostlegt ferðalag framundan
Á næsta þriðjudag mun Manchester United mæta Barcelona í seinni leiknum í undanúrslitum meistaradeildar evrópu. Það má því með sanni segja að þetta sé stærsti og mikilvægasti leikurinn á Old Trafford í ár.
Það besta við þetta allt er að ég og snillingurinn Óli Símon ætlum að skella okkur á þennan stórkostlega leik! Spenningurinn er svakalegur og það verður gaman að upplifa það að fara á svona stórleik. Við keyptum pakkaferð sem er algjör snilld.. flogið beint til manchester á mánudaginn 28.apríl, svo er leikurinn 29. apríl og farið heim miðvikudaginn 30.apríl. Þetta gerist einfaldlega ekkert betra.
Þegar ég fór á Old trafford 2005 þá fórum við á stuðningsmanna pöbbinn Bishop Blaize fyrir leikinn og lærðum náttúrulega alla stuðningsmanna söngvanna. Þangað munum við að sjálfsögðu fara aftur á þriðjudaginn og taka svona 3-4 klukkutíma af klikkaðri stemningu þar fyrir leik.
Fáum myndband af Bishop Blaize:



Eftirvæntingin er gríðarleg og mun ég koma með ferðasögu og jafnvel myndir í næstu viku
GLORY GLORY MAN UNITED !