Archive for March, 2009
Ég er á lífi
Ætli einhver skoði síðuna mína ennþá ? Ef svo er þá má alveg commenta
En nú eru rúmlega 10 mánuðir síðan ég bloggaði síðast, og það er mjög mikið búið að gerast í mínu lífi á þessum tíma.
Til að nefna nokkur atriði:
- United urðu englands og evrópu meistarar við mikinn fögnuð.
- Keypti mér mótorhjól (Honda VTX 1800) við mikinn fögnuð.
- Settist á skólabekk í Háskóla Reykjavíkur með vinnu við mikinn fögnuð (mis mikin samt).
- Upplifði bankahrunið sem starfsmaður Kaupþings banka.. ekki fögnuður í því, álagstími líkamlega og andlega.
- Er nú starfsmaður Nýa Kaupþings, mikill fögnuður í því.
- Tengdó eignuðust bústað í Húsafelli – þar er eintómur fögnuður, og ætlum við Fanný að vera duglegri að kíkka þangað á næstunni.
- Oddný systir og Halli eignuðust litla stelpu 16.febrúar … Endalaus fögnuður
Litla frænka verður skírð á morgun 28.mars 2009, fáum mynd af litla snillingnum:

Svo gerðist margt margt margt fleira sem ég mun deila með ykkur hérna á næstunni.
Ég lofa því hér með að það munu ekki líða 10 mánuðir hérna á milli færsla aftur