B O O T – C A M P


Sæl kæru gestir.

maður hefur verið latur að blogga.. en hérna koma smá fréttir af mér.

1. Ég er orðinn alltof feitur sekkur.

2. Nú er kominn tími til að gera eitthvað róttækt í málunum.

3. Búinn að skrá mig í 12 vikna Bootcamp námskeið 7:30 – 8:30 á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum.

4. HER-leg heitin byrja á mánudaginn.

5. Markmiðið er að ná 10kg af mér fyrir jól.

Vinur minn og frændi, og brjálaði Man Utd maðurinn Brynjar Harðarson kemur með mér í þennan pakka og ætlum við að hvetja hvorn annann fram í rauðan dauðann og rústa öllum þessum hermönnum í öllum keppnum - einnig ætlum við að koma upp sektar kerfi ef annar hvor okkar mætir ekki.. Þetta verður tekið af FULLUM KRAFTI.

:)

Fiskur og vatn í matinn í kvöld.. svo út að hlaupa.

Batnandi mönnum er best að lifa.. Amen.

kveðja,
Bjarni (Hvalur 2)

  1. #1 by Fanný Guðbjörg on September 6, 2007 - 15:34

    Það er búið að bjóða okkur í mat til Magnúsar og Huldu í kvöld. Ég er búin að tala við Berglindi svo klukkan 17:32 fer þú á þitt hjól og ég Berglindar svo hjólum við upp í Grafarvog til Magnúsar í mat og svo heim aftur.. Ertu maður í þetta Tonni?

  2. #2 by Bjarni Kristjánsson on September 6, 2007 - 15:38

    Sure, ekkert mál…

  3. #3 by Elva Rut on September 6, 2007 - 19:06

    Gangi þér vel í átakinu :)

    kv Elva

  4. #4 by Guðni on September 6, 2007 - 19:16

    Hver er aftur hvalur 1??

  5. #5 by Hvalur 1 (200181-4099) on September 6, 2007 - 19:41

    hæ. hvalur 1 hérna. ánægður með ykkur. þið verðið orðnir helslimm um jólin. svo verðið þið líka að búa ykkur andlega undir miklar og strangar myndatökutarnir. allar/ir munu vilja ykkur bera að ofan. og neðan. kveðja. hvalur 1.

  6. #6 by Kolbrún on September 7, 2007 - 12:07

    Hæ ég spyr eins og Guðni, hver er hvalur 1?
    En djöfull lýst mér vel á ykkur, hlakka til að sjá árangurinn um jólin :) ) Gangi ykkur vel……….

  7. #7 by Díana Dögg on September 7, 2007 - 14:36

    vá það er naumast… 10 kg. þú verður bara horfin um jól, ekki það að ég stiðji það… geturu ekki tekið kallinn minn með þér og bæt einhverjum kg. utan á hann?

  8. #8 by BH on September 8, 2007 - 10:49

    Elías Bjarni ísfjörð er Hvalur 1…

  9. #9 by Hvalur 1 (200181-4099) on September 8, 2007 - 23:58

    jújú enda fyrir þá sem ekki föttuðu að fatta það þá hafði ég vefsíðudrasl með í þessu kommenti hér að ofan ásamt því að hafa íslensku auðkenniskennitöluna mína með á kantinum…

  10. #10 by Óli Bidd on September 9, 2007 - 21:44

    Fanný búin að hrifsa af mér Tonna nafnið, fæ ég þá ekki Hvalur3? :D

  11. #11 by Óli Biddýar on September 10, 2007 - 13:48

    ég heimta skýrslu frá fyrsta tíma!!

  12. #12 by Binni on September 10, 2007 - 21:33

    Við mættum klukkan 07:30. Klukkan 08:10 ældi ég, í bókstaflegri merkingu inná klósetti. Þú hefur 2 mínútur til þess að æla var öskrað á mig, ég nýtti þær vel. Ég átti hvort eð er að telja hjá Bjarna þessar 2 mínútur.

  13. #13 by Fanný Guðbjörg on September 11, 2007 - 10:15

    Hann Bjarni ældi ekki neitt og hefði getað tekið aðra æfingu strax á eftir ;)
    Brynjar samt alveg í formi, Bjarni bara betri!

  14. #14 by Flugmóðurskipið (Óli Símon) on September 11, 2007 - 17:56

    10 kg er nú ekki nema 20 bjórar (500ml), eða tæpur kassi, þannig að ef þú myndir hætta að drekka bjór fram að jólum (ca.15.vikur)frá og með deginum í dag myndir þú léttast um allavega 150kg (magnið sem þú munt annars drekka af bjór) og verða -40kg án þess að þurfa að gubba í butt camp á ómennskum tíma. :D gangi þér vel selur, viltu síld?

  15. #15 by Valdi on September 18, 2007 - 15:39

    góður punktur

  16. #16 by Róbert Orri on September 19, 2007 - 19:35

    Komin tími til, karlinn var farin að sjást á Google Earth !!!

  17. #17 by Fanný Guðbjörg on September 20, 2007 - 22:37

    Robbi……… Say it to my face, bíats!

  18. #18 by Ívar Elefsen on September 28, 2007 - 23:53

    Þú ert alveg að missa kúlið með þessu boot camp átaki… Það er mest töff í heimi að vera ber með að ofan með bjórvömb, glasamottu upp á vömbinni með einn ískaldan

    http://208.100.1.88/media_content/os635afTwn.jpg
    Þetta er náttúrulega bara sexy!!

  19. #19 by Gummi Óli on October 2, 2007 - 12:58

    Já gangi þér vel í þessu átaki þínu! :P Já myndirnar úr bekkjarmótinu eru alveg frábærar!:)

  20. #20 by Hilli on October 12, 2007 - 00:11

    sæll Bjarni minn ég vona að þú sért ekki horfinn í þessu átaki þínu. Ég kom bara hérna við sem sérlegur bjórráðgjafi og vildi láta þig vita að hann gerir bara góða hluti fyrir líkama og sál, sama hvað þú gerir í þessu átaki, ekki hætta í bjórnum! Svo væri maður nú til í að fara að taka united leik með þér og lebba tott…..enham manni

  21. #21 by Elva Rut on October 17, 2007 - 18:32

    hvernig væri nú að fá nýtt blogg hérna…. hvernig endaði svo átakið??

  22. #22 by Róbert Orri on November 15, 2007 - 21:36

    Sanka you dead man ????

  23. #23 by Kolbrún on November 16, 2007 - 10:03

    Jæja á ekkert að fara senda inn nýja mynd svona til að sýna árangurinn?? :) ) eða þarf maður að bíða eftir jólunum.

  24. #24 by Ingólfur on December 1, 2007 - 16:07

    Ég get ekki annað en vitnað beint í þína síðustu færslu dags. 6. september 2007:

    ,,maður hefur verið latur að blogga.. ”

    Ingólfur, 1. desember 2007

  25. #25 by Dude on December 10, 2007 - 09:52

    Þú ert bjartur ef þú heldur að allt spikið fari af þér fyrir jólin.
    Þú þyrftir að vera allan daginn í bootcamp ef þetta ætti að hafast fyrir jólin dude.

(will not be published)