Jæja.. þá eru jólin að detta inn enn einu sinni. Allt klárt á okkar heimili, meira segja búið að pakka inn pökkunum!
Þannig að það er ekkert jólastress í gangi… enda er það bara hugarástand. Ekkert til sem heitir jólastress, er það nokkuð ?
Annars gleymdi ég að blogga hérna á síðasta sunnudag, en á þeim degi tóku mínir menn í United sig til og heimsóttu Liverpool á Anfield.. og UNNU 0-1, það þarf engum blöðum um það að fletta að United liðið er sterkara núna en undanfarin ár. Þessvegna verður alveg ótrúlega gaman í vor að vinna deildina og meistaradeildina! (p.s.: þá verður komið 50″ panasonic plasmi í stofuna hjá okkur).


Góða helgi kæru lesendur, og gleðileg jól !
#1 by Óli B. on December 22, 2007 - 10:20
kristjans.com removed from favorites !
#2 by Valdi on December 22, 2007 - 11:33
Samt ekki nógu sterkir til að bylta Arsenal úr fyrsta sæti nema í réttan hálftíma eða svo.
Gleðileg jól
#3 by Leó R. on December 25, 2007 - 01:30
Gleðileg jól frændi.
#4 by Óli B. on December 29, 2007 - 23:36
á ekkert að blogga um West Ham – Man Utd. leikinn í dag?
#5 by Fanný Guðbjörg on January 10, 2008 - 12:54
Vaknað til lífsins?
#6 by Ingólfur on January 14, 2008 - 18:29
Sakna þess að hafa ekki fengið blogg um West Ham leikinn.
p.s. Jólin eru búin
#7 by Kanwal on April 11, 2008 - 06:21
The best thing I can do for this wonderful source is to say that I’m a biggest fan of this website