Stórkostlegt ferðalag framundan


Á næsta þriðjudag mun Manchester United mæta Barcelona í seinni leiknum í undanúrslitum meistaradeildar evrópu. Það má því með sanni segja að þetta sé stærsti og mikilvægasti leikurinn á Old Trafford í ár.

Það besta við þetta allt er að ég og snillingurinn Óli Símon ætlum að skella okkur á þennan stórkostlega leik! Spenningurinn er svakalegur og það verður gaman að upplifa það að fara á svona stórleik. Við keyptum pakkaferð sem er algjör snilld.. flogið beint til manchester á mánudaginn 28.apríl, svo er leikurinn 29. apríl og farið heim miðvikudaginn 30.apríl. Þetta gerist einfaldlega ekkert betra.

Þegar ég fór á Old trafford 2005 þá fórum við á stuðningsmanna pöbbinn Bishop Blaize fyrir leikinn og lærðum náttúrulega alla stuðningsmanna söngvanna. Þangað munum við að sjálfsögðu fara aftur á þriðjudaginn og taka svona 3-4 klukkutíma af klikkaðri stemningu þar fyrir leik.

Fáum myndband af Bishop Blaize:

-H6qDz6trG0

Bestur 

Snillingur!

Carrick er snillingur :)

:)

Eftirvæntingin er gríðarleg og mun ég koma með ferðasögu og jafnvel myndir í næstu viku :)

GLORY GLORY MAN UNITED !

  1. #1 by Ívar Elefsen on April 24, 2008 - 23:59

    pff.. Segji bara Riise á þetta..

  2. #2 by Jón Árni Risi on April 25, 2008 - 11:31

    ógeðslegt blogg

    verður ábyggilega massaferð hjá ykkur samt… góða skemmtun! ;)

  3. #3 by Óli Símon on April 25, 2008 - 14:44

    Menn með sand í píkunni mega ekki commenta hér….djöfull verð ég ber að ofan með M.U skrifað á magann á mér með rauðum varalit sem ég hyggst fá “lánaðan” kvöldið fyrir leik….*ritskoðað*…

  4. #4 by Binni on April 29, 2008 - 21:54

    Dásamlegt! Til hamingju með að hafa komist til Himnaríkis á undan okkur öllum! Þetta var bara fullkomið í einu orði sagt og vel við hæfi að þú hafir upplifað þetta fyrir okkur! Fínt líka að hafa Óla með þarna til þess að hafa hemil á liðinu, hann er náttúrulega svo heilbrigður!

    Áfram United

  5. #5 by Dagný Rut on May 1, 2008 - 20:01

    Össss hvað hefur verið gaman! Ég hefði alveg gefið eitthvað til að vera þarna. Svo hefði ég gefið aðeins meira til að smella einum á Ronaldo… og kannski hvíslað því að honum að tjilla á hárgelinu!

    Annars átti ég að skila rosa góðri kveðju til þín! Þegar ég var í Osló um daginn hitti ég stelpu sem heitir Tóta – frænka hennar Bínu. Hún átti heima á Sigló þegar þið voruð lítil – þúveisst hérna í denn! Hér með er sú kveðja komin til skila.

  6. #6 by Oddný on May 7, 2008 - 18:20

    ég vil fá ferðasögu og myndir, takk!

(will not be published)