Eins og glöggir lesendur kristjans.com hafa tekið eftir fórum við Óli Símon á einn stærsta leik United á þessu ári, þar sem mínir menn slógu út Barcelona í undan úrslitum meistaradeildarinnar
Þetta var náttúrulega algjörlega fullkomin ferð, og við duttum í lukkupottinn hvað varðar sætin okkar á vellinum, en við fengum algjörlega geggjuð sæti fremst við völlinn
Fáum mynd sem lýsir þessu betur:


Stemningin þarna var ólýsanleg, þvílíkt og annað eins.
Það er ekki slæmt að vera United maður í dag, en eins og alþjóð veit þá tryggði United sér englandsmeistara titilinn í gær. Þannig að þetta er klappað og klárt, United er besta lið englands. Næst á dagskrá er að vinna Chelsea í úrslitum meistaradeildarinnar.. en það mun gerast 21.maí takk fyrir það.
Besta lið Englands fær bikarinn afhentan. Manchester United
Besti og mesti knattspyrnustjóri Englands frá upphafi. Sir Alex Ferguson
Langbesti knattspyrnumaður heims, ekki nokkur vafi. Cristiano Ronaldo
#1 by Hilli on May 13, 2008 - 10:16
Djöfull er ég feginn að halda með United en ekki Liverpool, 18 ár frá síðasta deildartitli hjá þeim. Takk pabbi. Til hamingju með titilinn Bjarni og gangi þér vel í Moskvu
#2 by Oddný on May 13, 2008 - 14:48
hehe flottar myndir
#3 by Dagný Rut on May 13, 2008 - 20:59
Já þetta var góður dagur, og 21. maí verður ennþá betri
#4 by DBi on May 14, 2008 - 10:36
Man einhver hvaða lag fór fyrir íslands hönd í eurovision þegar liverpool varð síðast englandsmeistari..?
#5 by Ingólfur on May 14, 2008 - 14:39
Held að það hafi verið Nei eða Já með Stjórninni.
Til hamingju ManUre!
#6 by Púllari on May 14, 2008 - 19:46
Helvítis grís
#7 by Lebbi Kex on May 16, 2008 - 08:01
Ég myndi giska á “Eitt lag enn” með Stjórninni.
En þetta er frábært hjá United og verður enn betra á miðvikudaginn.
#8 by Valdi on May 18, 2008 - 19:27
Þið Man Utd áhangendur eruð svo hrokafullir, svona svipað og KR-ingar. En til hamingju með titilinn, ég er með Chelsea 21. maí.
#9 by ÓBidd on May 19, 2008 - 08:46
þetta er ósköp einfalt.. þið vinnið Chelsea og þar með tvöfald blingbling í hús hjá ykkur í ár. Sir Alex sér þetta sem kjörið tækifæri til að hætta og verða minnst sem “Legend” á Old Trafford, Cristiano Ronaldo grætur eins og honum einum er lagið og fer svo til Real Madrid í sumar. ManUtd ráða Gaua Þórðar og drulla uppá bak til æviloka.
Köttur út í mýri, setti upp á sig stýri, úti er ævintýri. Amen.
Alltaf gott að eiga sér drauma.. Ra Ra Ra Rafa Benitez, Xabi Alonso, Reina and Torres !
#10 by ÓBidd on May 22, 2008 - 15:27
2 atriði búin að rætast hjá mér. Þið unnuð Chelsea og Crynaldo grét að sjálfsögðu.
Nú á Alex bara eftir að hætta og Gaui Þórðar ráðinn..
#11 by ÓBidd on May 31, 2008 - 10:52
ertu hættur að blogga haus ?
#12 by Fanný Guðbjörg on June 20, 2008 - 15:29
Manstu þegar þú bloggaðir á föstudögum? eða bara bloggaðir yfir höfuð?
#13 by Ingólfur on July 22, 2008 - 17:20
Það er nú ekki einu sinni búið að blogga um nýja hjólið, hvað er að?
#14 by Leó R. on July 25, 2008 - 20:14
Það þarf ekki glögga lesendur til að sjá að síðasta blogg var skrifað þ. 12. maí sl. en reyndar á þessu ári…