Ég er á lífi


Ætli einhver skoði síðuna mína ennþá ? Ef svo er þá má alveg commenta :)

En nú eru rúmlega 10 mánuðir síðan ég bloggaði síðast, og það er mjög mikið búið að gerast í mínu lífi á þessum tíma.

Til að nefna nokkur atriði:

  • United urðu englands og evrópu meistarar við mikinn fögnuð.
  • Keypti mér mótorhjól (Honda VTX 1800) við mikinn fögnuð.
  • Settist á skólabekk í Háskóla Reykjavíkur með vinnu við mikinn fögnuð (mis mikin samt).
  • Upplifði bankahrunið sem starfsmaður Kaupþings banka.. ekki fögnuður í því, álagstími líkamlega og andlega.
  • Er nú starfsmaður Nýa Kaupþings, mikill fögnuður í því.
  • Tengdó eignuðust bústað í Húsafelli – þar er eintómur fögnuður, og ætlum við Fanný að vera duglegri að kíkka þangað á næstunni.
  • Oddný systir og Halli eignuðust litla stelpu 16.febrúar … Endalaus fögnuður :)

Litla frænka verður skírð á morgun 28.mars 2009, fáum mynd af litla snillingnum:

mynd_e4e7174f

Svo gerðist margt margt margt fleira sem ég mun deila með ykkur hérna á næstunni.

Ég lofa því hér með að það munu ekki líða 10 mánuðir hérna á milli færsla aftur :)

  1. #1 by Magnús Rúnar Magnússon on March 27, 2009 - 22:08

    Ps. Ég las þennan pistil. Töluvert um stafsetningarvillur en þó vel skiljanlegur :) haha

  2. #2 by Bjarni on March 27, 2009 - 22:11

    Magnús minn, það eru engar stafsetningarvillur í textanum, því ég á þennan texta og ræð hvernig hann er skrifaður ! ;)

  3. #3 by Eva Björk on March 27, 2009 - 22:21

    Sæll og blessaður

    Það er gott að vita að þú sért á lífi og byrjaður að blogga aftur

  4. #4 by Oddný on March 28, 2009 - 01:26

    jibbí! Þú verður að vera duglegur að skrifa svo ég hafi eitthvað að gera í fæðingarorlofinu hahaha ;) ég er ekki frá því að músin hafi saknað ykkar í kvöld.. hún er allavegana mjög spennt að hitta þig og Fanný SNILLING á morgun :D

  5. #5 by gfs on March 31, 2009 - 00:49

    mar lýtur hérna inn stundum, kannski oftar núna þegar þú ert farinn að blogga aftur ;)

  6. #6 by Maríanna Cowell Leósdóttir on March 31, 2009 - 19:25

    gaman gaman, að þú skulir vera komin aftur í bloggið. Ég hef komið hingað reglulega inn til að athuga hvort það væri ekki virkilega eitthvað að frétta af þér / ykkur. Og loksins, fréttir.
    Vertu velkomin Bjarni frændi :-)
    Hafðu það gott.

  7. #7 by Leó R. on April 16, 2009 - 06:07

    Til hamingju með áfangann, og hvað svo…?

  8. #8 by Róbert Orri on May 4, 2009 - 10:27

    Allt annað eftir að þú uppfærðir síðuna, mun duglegri við að blogga hahaha

  9. #9 by Bjarni on May 4, 2009 - 10:52

    já allt annað líf maður.. ;)

  10. #10 by Óli B. on May 13, 2009 - 10:33

    ánægður með þig frændi.. haltu nú áfram að blogga, eina bloggið sem virðist lifa eftir facebook innrásina!

  11. #11 by Oddný on May 13, 2009 - 19:51

    þetta er nú ekkert svo virkt blogg Óli minn ;-) Bjarni koma svoooooo

  12. #12 by kristbjörn on May 22, 2009 - 23:17

    Sæll frændi
    það er greinilegt að rigningin og slabbið er búið í bili. Nú gefst þér líklega meiri tími til ritstarfa þar sem ekki þarf að þrífa krómið á “skellinöðrunni” eins mikið yfir sumartímann.

  13. #13 by Ingólfur on July 1, 2009 - 16:41

    Ég held að bloggið sé flutt á facebook, Bjarni er virkur þar.

(will not be published)