$ÝN 2

Í byrjun mánaðarins hringdi ég í 365 miðla og keypti mér áskrift að sýn2 til að geta horft á enska boltann heima í stofu. Núna 2 vikum síðar er stöðin ekki ennþá komin inn (og já ég er búinn að uppfæra afruglarann hjá mér og gera öll þau trick sem þarf að gera). Það er united leikur í kvöld sem ég að sjálfsögðu verð að sjá.. og þess vegna hringdi ég í 365 miðla fyrir nákvæmlega 47 mínútum síðan til að kvarta yfir þessu.

Nú eru liðnar 48 mínútur og ég er ennþá á bið !! Hvað er að hjá þessu skíta fyrirtæki. Það er ekki nóg með það að þeir OFRUKKA fyrir Sýn og Sýn2 .. heldur er þjónustustigið svo lágt hjá þeim að manni blöskrar…

57 dýrmætar sumarfrí mínútur farnar í bið.. and still counting…

59 mínútur liðnar !”#$%&/!”#$%&/”#$%&/$%&/%&/(%&/(!”#$%&/(

5 Comments

Polskí

Jæja góðir gestir.

Eins og glöggir lesendur Fannýjar hafa séð, þá erum við stödd í Póllandi, nánar tiltekið í Vecerowo sem er nálægt Gdynja og Gdansk. Berglind vinkona Fannýjar er að fara að gifta sig í dag klukkan 17:00. Veislan mun standa frá 18:00 – 06:00 og verða veitingar bornar fram allann þann tíma. Jebb jebb… Pólverjarnir kunna þetta. Verðlagið hérna er gjörsamlega út í hött. Ég fæ bara samviskubit í hvert skipti sem ég borga, þetta er allt svo ódýrt hérna.

tökum smá dæmi.

bjór = 40 krónur
vodka flaska = 300 krónur
jakkaföt, skyrta, bindi og belti = 10.000 krónur
strætó= 19 krónur
matur fyrir 7 á pizza hut (með bjórum) = 1800 krónur
hótel nóttin = 3000 krónur

Hér kann enginn ensku. Þess vegna er gott að kunna “EN PIWO” sem þýðir einn bjór. Nú sit ég á hótelbarnum með einn slíkan þar sem Fanný (veislustjórinn) er í lagningu eða eitthvað fyrir brúðkaupið í dag ;)

Pólverjarnir eru ótrúlega gestrisnir. Alveg gjörsamlega frábærir í alla staði. Í gær þá var haldin 80 manna grillveisla heima hjá foreldrum Mareks (brúðguminn), við löbbuðum í hús nágrannana og tæmdum alla garða og allar stofur af húsgögnum sem við settum svo í garðinn þar sem veislan var haldin.

Það er mikil vodka menning hérna. Þeir eru ekkert að blanda vodkann, heldur frysta þeir hann og drekka svo bara dry.. úr stórum staupum.

Veislan er í kvöld, og á morgun… já þið lásuð rétt, á morgun klukkan 14:00 hefst veislan aftur og þá mun allur bærinn liggja í því. Svo á mánudaginn þá förum við til Hel sem er bær 100km héðan, þar munum við chilla á ströndinni í 4 daga, en þess má geta að hérna úti er 25 – 30° hiti, sól og logn.

Næsta laugardag munum við svo fljúga til Köben og á mánudagskvöld fljúgum við heim til Íslands (13.ágúst)

Við erum búin að taka 300 myndir hérna á 5 dögum, og þetta fer allt á netið þegar við komum heim! :)

4 Comments

Saving Iceland

Ég rakst á þetta myndband á netinu, þetta eru Saving Iceland samtökin að mótmæla stóriðjustefnu ríkisins.

Sjáið þessi útúr reyktu fífl. Að hindra störf lögreglunnar.. þarna eru mótmælendur að stöðva umferð við Snorrabraut og hlýða ekki lagana vörðum.. og svo veitast þeir líka að lögreglunni oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Mér finnst að við svona aðstæður á lögreglan að grípa til HARÐRA aðgerðar og berja þessi viðrini til óbóta með kylfum sínum…  En sjáið myndbandið og dæmið sjálf..

NenbTc0cQs4

11 Comments

Sumargrill :)

Grilltímabilið í hámarki. Allir að grilla. Húsmæður gleðjast yfir því að
þurfa ekki að standa yfir pottunum, því bóndinn sér um grillið. VEI!

Þannig gengur þetta fyrir sig:
Frúin verslar í matinn.
Frúin býr til salat, græjar grænmeti sem á að grilla, og býr til sósu.
Frúin undirbýr kjötið. Finnur til réttu kryddin, setur kjötið á bakka
ásamt grilláhöldum.
Bóndinn situr við grillið, með bjór í annarri.

Lykilatriði:
Bóndinn setur kjötið á grillið!
Frúin fer inn, finnur til diska og hnífapör.
Frúin fer út, og segir bóndanum að kjötið sé að brenna.
Bóndinn þakkar henni fyrir, og biður hana um að koma með annan bjór
á meðan hann tæklar ástandið.

Annað lykilatriði:
Bóndinn tekur kjötið af grillinu, og réttir frúnni.
Frúin leggur á borð. Diskar, hnífapör, sósur, salöt og annað meðlæti,
ratar á borðið.
Eftir matinn gengur frúin frá öllu.

Mikilvægast af öllu:
Allir þakka BÓNDANUM fyrir matinn, og hversu vel HONUM tókst upp.
Bóndinn spyr frúna hvernig henni hafi líkað “frídagurinn”…
og eftir að hafa séð svipinn á henni, ákveður hann að það er
ómögulegt að gera konum til geðs.

;)

5 Comments

Dæmi um harða stuðningsmenn

Ég verð að setja þetta screenshot inn.. Sverrir félagi minn er einn harðasti poolari sem ég veit um, hann var kominn á Players í morgun - 8 klukkutímum fyrir leik til að hita upp!! :)

sverrir

 

7 Comments

Siglfirðingar “eignast” Ráðherra

Í kvöld var tilkynnt um ráðherraskipan í komandi ríkisstjórn samfó og sjálfstæðisflokks, Siglfirðingurinn Kristján Lúðvík Möller verður næsti samgönguráðherra.

Möllerinn

Til hamingju Stjáni Möller.

Annað….  þegar ég bloggaði í gær um “síðasta fótbolta bloggið” þá var ég að sjálfsögðu að tala um síðustu færsluna um United í góðan tíma ;)

En einn stærsti leikur ársins á morgun… og ég verð bara að tjá mig aðeins.. Liverpool mætir AC Milan í meistaradeild evrópu.
Einn góður vinur minn og dyggur stuðningsmaður AC Milan er búinn að leggja undir 16.000 kall á sína menn.. þannig að það er eins gott að þeir vinni!

Mín spá er sú að AC muni fara á kostum á morgun og vinna sannfærandi sigur…. 3-1

2 Comments

Síðasta fótbolta bloggið í bili.. :)

Jæja, eins og allir vita þá vann Man United ensku úrvalsdeildina, þeir einfaldlega spiluðu lang besta og skemmtilegasta boltann, þannig er nú það.

Fyrir ykkur sem misstuð af því þegar þeir fengu titilinn, þá er video af því hérna.. Enjoy :)

DuvELRJi2po

2 Comments

gsm blogg

Godan daginn. Nu er klukkan 10 a thessum fina laugardags morgni… Eg var ad setja forrit i gsm simann minn sem gerir mer thad faert ad blogga beint ur simanum. Ekki veit eg hvort ad eg noti thennan fidus mikid.. en taeknin er allavega til stadar… gaman af tvi :-)

8 Comments

healing process..

Jæja.. þá er maður að verða búinn að þurrka úr sér tárin eftir að AC milan burstuðu mína menn 3-0 !! Eins og glöggir lesendur síðunnar hafa séð, þá tók ég þessa reiði að sjálfsögðu út á Elíasi Bjarna Ísfjörð. En það var bara því hann var með mesta böggið á meðan á þessum leikjum stóð!!

En nú er lundin að léttast og við vinnum bara FA bikarinn og ensku deildina með stæl. Og svo fáum við ömurlegan úrslitaleik í meistaradeildinni, þar sem AC Milan mun vinna Liverpool svona c.a. 6-0

Það munaði litlu að við kæmumst alla leið, eins og þessi treyja hérna sýnir okkur: (Það hefur pottþétt einhver púllari búið þessa mynd til).

AIG

Góða helgi kæru landsmenn!

1 Comment

No words needed!

United

12 Comments